Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2412) og Margeir Pétursson (2423) héld í dag áfram taflmennsku áflokkaskiptu móti í Póllandi, Ustron Chess Festival. Báðir eru þeir í Masters flokknum þar sem 54 keppendur taka þátt. Margeir er 10. stigahæsti maður mótsins en Aleksandr sá 13. stigahæsti. Í gær var frídagur á mótinu eftir tvöfalda umferð daginn áður.

Aleksandr hafði 3 vinninga af 5 og mætti pólskum andstæðingi Patryk Chylewski sem er IM með 2286 elóstig og hafði hvítt.
Aleksandr náði smá pressu og hafði peði yfir í lokin en varð að sætta sig við þráleik.
Aleksandr hefur 3,5 vinning og fær svart í næstu umferð gegn FM Dawid Niekrasi (2316) í næstu umferð.

Margeir fékk pólskan CM Flawian Krawczyk (2243) í umferð dagsins. Margeir virtist lengst af hafa góða stjórn á stöðunni en eitthvað fór úrskeiðis í miðtaflinu og tvö peð féllu í valinn og Pólverjinn náði að klára skákina.
Anstæðingur Margeirs í næstu umferð er Hubert Meers (2223), Pólverjann sem Aleksandr lagði að velli í fyrstu umferð.













