Kristján Ingi Smárason vann öruggan sigur á Atskákmóti Goðans 2026 sem fram fór á dögunum. Kristján fékk 7,5 vinninga af 8 mögulegum. Ádám Gulyás varð annar með 6,5 vinninga og Hilmar Freyr Birgisson þriðji með 5,5 vinninga. Kristján Ingi var að vinna sinn fyrsta Atskáktitil hjá félaginu.

9 keppendur tóku þátt í mótinu og tefldar voru skákir með 10+3 tímamörknum.

Lokastaðan

Röð Nafn Stig Vinn
1 Smarason, Kristjan Ingi 1762 +126 7.5
2 Gulyas Adam Ferenc 1829 +29 6.5
3 Birgisson, Hilmar Freyr 1721 +32 5.5
4 Sigurdsson, Smari 1905 -16 5.0
5 Sigurðsson, Jakob Sævar 1924 -20 5.0
6 Agustsson, Egill Steinar 1794 -23 3.5
7 Adalsteinsson, Hermann 1640 -22 2.0
8 Akason, Aevar 1656 -45 1.0
9 Lesman Dorian 0.0

Nánar á heimasíðu Goðans

- Auglýsing -