Ólympíuskákmótinu lauk í Samarkand í Úsbekistan í gær. Úsbekistan varð Ólympíumeistari í opnum flokki á heimavelli og Kína varð ólympíusmeistari kvenna. Segja má að þetta hafi heldur betur verið sigur Asíu sem hlaut fimm verðlaunasæti en Evrópa ein. Íslenska liðið í opnum flokki endaði í 58. sæti með 13 liðsstig en kvennaliðið endaði í 82. sæti með 11 liðsstig.  Átta af tíu keppendum Íslands hækkuðu á stigum svo sannarlega má segja að liðin hafi staðið sig betur en vænta mætti þótt að lokastaða íslensku liðana enduspegli það ekki.

Tvær síðustu umferðirnar

Í 10. umferð tapaði karlaliðið illa fyrir Danmörku, ½–3½. Í lokaumferðinni gerði Ísland jafnefli við Albaníu 2–2.

Kvennaliðið gerði jafntefli gegn Írlandi 2–2 í 10. umferð en tapaði fyrir Litháen 1–3 í lokaumferðinni.

Opinn flokkur – 10. umferð: Danmörk – Ísland 3½–½

Borð Ísland Úrslit Andstæðingur
1 GM Vignir Vatnar Stefánsson (2531) 0–1 GM Jonas Buhl Bjerre (2615)
2 IM Hilmir Freyr Heimisson (2342) 0–1 GM Jesper Søndergaard Thybo (2579)
3 GM Jóhann Hjartarson (2461) ½–½ GM Mads Andersen (2549)
4 GM Guðmundur Kjartansson (2402) 0–1 GM Bjørn Møller Ochsner (2478)

 

Opinn flokkur – 11. umferð: Albanía – Ísland 2–2

Borð Ísland Úrslit Andstæðingur
1 GM Vignir Vatnar Stefánsson (2531) ½–½ IM Franc Ashiku (2388)
2 IM Hilmir Freyr Heimisson (2342) 1–0 IM Dritan Mehmeti (2312)
3 GM Jóhann Hjartarson (2461) 0–1 FM Mateu Boci (2317)
4 GM Guðmundur Kjartansson (2402) ½–½ FM Aleksander Xhembulla (2292)

 

Kvennaflokkur – 10. umferð: Írland – Ísland 2–2

Borð Ísland Úrslit Andstæðingur
1 WGM Lenka Ptacnikova (2082) 0–1 WGM Trisha Kanyamarala (2289)
2 WFM Hallgerður Þorsteinsdóttir (1995) 0–1 Alice O’Gorman (2009)
3 WCM Iðunn Helgadóttir (1869) 1–0 WFM Diana Mirza (1950)
4 Hrund Hauksdóttir (1817) 1–0 WCM Antonina Gora (1946)

 

Kvennaflokkur – 11. umferð: Ísland – Litháen 1–3

Borð Ísland Úrslit Andstæðingur
1 WGM Lenka Ptacnikova (2082) ½–½ WGM Salomėja Zakšaitė (2101)
2 WFM Guðrún Fanney Briem (1865) 0–1 WIM Simona Limontaitė (2130)
3 WCM Iðunn Helgadóttir (1869) 0–1 Agnė Mickūnaitė (1977)
4 Hrund Hauksdóttir (1817) ½–½ WFM Marija Sibajeva (1985)

 

Árangur og Elo-breytingar

Opinn flokkur

Skákmaður Skákir  Vinn. Breyting
GM Vignir Vatnar Stefánsson 11 7 +2,5
IM Hilmir Freyr Heimisson 9 5 +8,7
GM Jóhann Hjartarson 9 5½ −1,5
GM Hannes Hlífar Stefánsson 7 3 −17,7
GM Guðmundur Kjartansson 8 5½ +6,5

 

Kvennaflokkur

Allir keppendur Íslands hækkuðu á stigum!

Skákkona Skákir Vinn. Breyting
WGM Lenka Ptacnikova 10 5½ +9,4
WFM Hallgerður Þorsteinsdóttir 9 4½ +4,2
WFM Guðrún Fanney Briem 10 6 +61,6
WCM Iðunn Helgadóttir 9 5 +20,4
Hrund Hauksdóttir 6 5 +20,6

 

Guðrún Fanney hækkaði langmest, um 61,6 stig. Iðunn og Hrund hækkuðu um rúmlega 20 stig hvor. Í opnum flokki hækkuðu Hilmir Freyr, Guðmundur og Vignir.

Verðlaunahafar og besti heildarárangurinn

Opinn flokkur
Gull: Úsbekistan (20 liðsstig af 22)
Silfur: Indland (18)
Brons: Þýskaland (18)

Kvennaflokkur
Gull: Kína (20)
Silfur: Kasakstan (18)
Brons: Indland (17)

Bestur heildarárangur beggja flokka: Indland hlaut Gaprindashvili-bikarinn fyrir besta samanlagða árangur karla- og kvennaliðs.

 

- Auglýsing -