Gull og silfur Vignir Vatnar Stefánsson og Alexandr Domalchuk-Jónasson báru af í efsta flokki á NM í skólaskák. — Ljósmynd/Helgi Ólafsson

Unglingamótinu í Uppsala lauk í dag með tvöfaldri umferð. Þeir Aleksandr Domalchuk-Jonasson og Vignir Vatnar Stefánsson enduðu hlutskarpastir Íslendingana en áttu heilt yfir kannski ekkert sérstakt mót. Adam Omarsson hækkaði mest á stigum en hann átti ansi gott mót.

Fyrri umferð dagsins var áttunda umferðin og þar fengu Íslendingar jafn marga vinninga og voru í boði, því miður voru tvær Íslendingaviðureignir í umferðinni.

Aleksandr lagði Stephan Briem a velli í baráttuskák. Stephan hafði eitthvað betra tafl en Sasha náði að trikka fram valdað frípeð í endatafli sem gerði útslagið.

Adam hefur mikið verið í því að eiga flottar fléttur en nú lenti hann á öfugum endanum. Vignir refsaði hér slökum leik Adams 8…a6?

9.e5 dxe5 10.dxe5 Rg4 og klassíska gríska gjöfin 11.Bxh7! Vignir fékk óstöðvandi sókn

Alexander Oliver lagði CM Neeraj Harish (2076), ungur bandaríkjamaður sem teflir alltaf á Reykjavik Open.

Í lokaumferðinni  mættust Aleksandr og Vignir og gerðu frekar stutt jafntefli. Þeir tefldu þekkta jafnteflislínu í mótteku drottningarbragði.

Þetta er eitt af þessum týpísku jafnteflum sem oft koma upp ef báðir vilja jafntefli. Sjá má fleiri dæmi um slík í myndbandi undirritaðs hér að neðan (á engilsaxnesku).

Innbyrðis jafntefli varð líka hjá Stephani Briem og Alexander Oliver í annarri algengri jafnteflislínu.

Adam tapaði með hvítu í kóngsindverja.

Lokastaðan:

Vignir Vatnar og Aleksandr enduðu eins og áður sagði efstir Íslendinga með 5,5 vinning í 4-5.sæti.  Ekkert sérstakt mót þó hjá þeim, Vignir tapar 13 elóstigum en Aleksandr tapar 5.

5 vinninga fengu þeir Stephan Briem og Alexander Oliver Mai. Stephan hækkar um 21 elóstig, lagði Vigni að velli sem var drjúgt. Alexander náði að laga sitt mót, byrjaði illa en endaði í smá stigagróða.

Aflakóngur í stigum varð svo Adam Omarsson sem átti gott mót. Hann endaði með 4,5 og var í toppbaráttu lengst af móts. Hann hækkar um 73,6 elóstig fyrir þennan árangur!

- Auglýsing -