Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2529) heldur í við efstu menn á Heimsmeistaramóti 50+ á Ítalíu. Hannes lagði danska alþjóðlega meistarann Uffe Vinter-Schou (2345) að velli í dag. Hannes hafði hvítt og hélt fínni stjórn á stöðunni allan tímann og var í lítilli hættu.
Hannes hefur 5,5 vinning ásamt þremur öðrum stórmeisturum. Suat Atalik er efstur með 6 vinninga. Næst á dagskrá hjá Hannesi er uppgjör gegn sjálfum Michael Adams (2670) stigahæsta manni mótsins. Hannes hefur svart og ljóst að hér er algjör lykilskák á ferðinni fyrir Hannes!
- Mótið á chess-results
- Beinar útsendingar á lichess
- Beint á Chess24
- Auglýsing -


















