Þrettánfaldi Íslandsmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2529) heldur áfram góðu gengi á Heimsmeistaramóti 50+ sem fram fer á Terrasini á Ítalíu. Hannes vann sína skák í dag og er nú í efsta sæti ásamt Suat Atalik með 7 vinninga af 9 en þeir mætast einmitt í næstsíðustu umferðinni.

Í níundu umferðinni mætti Hannes FIDE meistara frá Filipseyjum Arlan Cabe (2303). Hannes stýrði hvítu mönnunum og upp kom Sikileyjarvörn. Okkar maður sýndi strax hvað hann ætlaði sér með því að velja Keres-árásina svokölluðu með 6.g4

Til að taka allan vafa af ákveðni Hannesar í þessari skák kom snemma mannsfórn

14.Rd5! sem opnar stöðuna hvítum í vil. FIDE meistarinn fórnaði strax til baka með 14….exd5 15.exd5 Re5 en þá fékk Hannes algjörlega myljandi sóknarstöðu.

Upphafið að endinum var svo önnur mannsfórn skömmu síðar

21.Bxf7 rýfur kóngsstöðuna algjörlega upp á gátt. Hannes fann í framhaldinu kannski ekki bestu tölvuleikina en staðan var það góð að það skipti engu máli og mikilvægur punktur kominn í öruggt hús.

Fyrir umferðina var staðan svona:

Suat Atalik gerði stutt og metnaðarlaust jafntefli við Maxim Dlugy á efsta borði. Segja má að það hafi hlaupið á snærið hjá Hannesi hvernig önnur úrslit urðu.

Ivan Morovic Fernandez hafði algjört yfirburðatafl í miðtaflinu en skv. lichess og chess-results voru úrslitin jafntefli.

Morovic hafði hvítt hér gegn Maxim Novik. Síðasti leikur svarts var 28…Bh5 og jafntefli samið. Mögulega einhver villa hér á ferð þar sem hvítur á myljandi sókn. Tölvurnar segja +5 á hvítt, hann getur teflt sóknina áfram og jafnvel fórnaði með 29.Hxh5 og sett riddara á f5. Furðulegt ef rétt er.

Michael Adams missti svo niður vinningsstöðu sem þýðir að hann verður hálfum vinningi á eftir Hannesi, eins og Morovic. Adams hafði svart á Zurab Sturua.

Adams hafði mjög vænlegt miðtafl og hróksendatafl en náði ekki að klára.

Í lokin lék hann 46…h4 og jafntefli var samið. Svartur þarf að gefa g-peðið til að stöðva a-peðið og þá er jafnteflið óumflýjanlegt. Adams hefði orðið að finna 46…Kg3! 47.a5 Kh4! til að búa til vandamál fyrir Zurab.  Í lokin er staðan er enn jafntefli en hvítur þarf að hafa fyrir því. Adams hafði þó mun betri færi fyrr í skákinni.

Hannes og Atalik eru því efstir með 7 vinninga af 9 en svo koma fimm skákmenn með 6,5 vinning og ljóst að lokabaráttan verður svakaleg!

Skv. rannsóknarvinnu Skak.is fær Hannes hvítt í 10. umferðinni og mætir Suat Atalik í enn einni úrslitaskákinni fyrir Hannes. Sigur gegn Atalik kæmi Hannesi í frábæra stöðu fyrir lokaumferðina!

- Auglýsing -