Æfingar fara fram á laugardögum kl 13-14 í Glersalnum í stúkunni við Kópavogsvöll. Fyrsta æfingin er laugardaginn 3. febrúar og er stefnt að því að hafa æfingarnar fram á vorið.
Allar stúlkur sem tóku þátt í stúlknasveitamótinu laugardaginn 27.janúar geta tekið ókeypis þátt auk þess sem þær geta boðið vinkonum sínum með sér. Aðrar eru líka velkomnir ókeypis á fyrstu æfinguna.
Foreldrar geta fylgt dætrum sínum en mega ekki vera í æfingasalnum nema að nauðsyn beri til eða að rými sé nægjanlegt. Aðstaða verður fyrir foreldra á 1.hæð.
Á stúlknasveitamótið mættu um 90 stúlkur. Ef við náum að halda, þó ekki væri nema hluta þeirra, virkum í æfingahóp í vetur og vonandi næstu ár líka þá er kominn góður grunnur að öflugu stúlknastarfi í skákinni á Íslandi næstu árin.
Til að ná góðum árangri í skákinni (og öðru sem fólk tekur sér fyrir hendur) er gott að geta æft þrisvar í viku. Það hefur sýnt sig að stúlkur vilja geta æft og keppt í eigin hópi þó þær tefli líka í blönduðum hópi. Skákdeild Breiðabliks vill leggja sín lóð á vogarskálarnar til að stúlkur geti æft þrisvar í viku og þá a.m.k. einu til tvisvar sinnum í sínum hópi. Gott samstarf verður við önnur taflfélög og stefnum við t.d. á að einhverjar æfingar verði á því formi að önnur taflfélög bjóði hópinn heim.
Á fyrstu æfingunni verða veitingar í boði, bæði fyrir iðkendur og foreldra. Stefnum á að tefla æfingaskákir og munu þjálfarar segja stúlkunum til á milli skáka. Þjálfarar og aðstoðarmenn á fyrstu æfingunni verða félagar úr Skákdeild Breiðabliks og Taflfélagi Bolungarvíkur.
Við biðjum iðkendur að skrá sig, því það auðveldar allt skipulag að hafa nöfnin. En það er samt ekki nauðsynlegt og nægir að mæta á æfinguna.
Við viljum einnig vekja athygli á stúlknaæfingum sem Skákdeild Breiðablik og Skákskóli Íslands standa fyrir á mánudögum á sama stað: https://skak.is/skakskolinn/2024/01/04/stulknanamskeid-skakskolans-i-stukunni-hefjast-a-manudaginn/
Og svo eru önnur taflfélög einnig með æfingar sem gætu hentað: https://skak.is/2020/09/28/aeskulydsstarfsemi/
















