Aleksandr Domalchuk-Jonasson tefldi tvöfalda umferð í dag á opnu móti á Ítalíu, Lignano Sabbiadoro Open 2024. Báðar skákir Aleksandr enduðu með jafntefli, en misstutt þó.
Í fyrri skákinni var á ferðinni toppslagur hjá tveimur efstu mönnum að loknum fjórum umferðum. Aleksandr hafði þá svart gegn FM Ilan Schneider (2377) frá Argentínu sem hafði fullt hús, hálfum vinningi betur en Aleksandr.
Tefld var caro-kann vörn og taflið nokkurn veginn í jafnvægi. Aleksandr gaf hvítum færi á að fá biskupaparið og aðeins betra tafl og hefði hvítur kannski getað pressað eitthvað frameftir ef hann hefði haldið parinu. Þess í stað gaf hann svörtum stakt peð en minnkaði þess í stað taphættuna í nánast ekkert vegna mislitra biskupa. Aleksandr aldrei í hættu en varð að sættast á skiptan hlut.
Seinni skákin varð töluvert styttri. Sasha mætti þar sterkum skákmanni, IM Ilia Martinovici (2435) frá Moldavíu og hafði hvítt. Annaðhvort hafði Aleksandr ekki vopn á reiðum höndum gegn mótteknu drottningarbragði eða var þreyttur eftir fyrri skákina. Hann bauð allavega jafnteflið snemma og svartur þáði það.
Aleksandr hefur því 4,5 vinning að loknum sex umferðum og er enn í öðru sæti ásamt tveimur öðrum og enn hálfum vinningi á eftir efsta manni. Skipti hafa þó orðið á efsta manni en GM Artem Omelja (2434) hefur hrifsað toppsætið. Aleksandr mun einmitt mæta honum í sjöundu umferð og hefur svart.
Lignano Sabbiadoro Open 2024 er opið mót sem fram fer í bænum Lignano á Ítalíu. Mótið er flokkaskipt, fjórir flokka fara fram á sama tíma og teflir Aleksandr Domalchuk-Jonasson í Masters flokki þar sem hann er 8. í stigaröð af 52 keppendum. Stigahæstur keppenda er IM Ilya Martinovici (2439) frá Moldavíu. Fjórir stórmeistarar taka þátt og fjöldi titilhafa. Tefldar eru 9 umferðir eftir svissneska kerfinu.
















