Boðsmóti Skákfélags Akureyrar lauk í síðustu viku.  Við erum ekki að tíunda úrslitin á mótinu eða lokastöðuna þar sem afar misjafnt hversu margar skakir einstakir keppendur tefldu. Markús Orri fékk þó óvéfengjanlega flesta vinninga, en hann tefldi fimm skákir af sjö og vann þær allar. Næstu menn voru allir í einum hnapp, en vinningatalan segir fátt þar sem mismargar skákir eru að baki. Það meginmarkmið með mótinu að gefa ungum og upprennandi iðkendum tækifæri til að tefla við reyndari menn og eiga möguleika á að öðlast alþjóðleg skákstig (fyrir kappskák), gekk hinsvegar prýðilega upp. Þannig munu þau Nökkvi Már og Harpa væntanlega koma inn á stigalistann nú um áramótin og Baldur Thoroddsen á aðeins eftir örfáar skákir til að fá sína stigatölu birta. Fleiri öðluðumst dýrmæta reynslu og allir höfðu gaman af. Alls tefldu 23 skákmenn eina eða fleiri skákir á mótinu. Það út af fyrir sig er frábær árangur!

Mótið á Chess-Results

Svo minnumst við á tvö nýleg hraðskákmót. Fyrra mótið fór fram fimmtudaginn 12. des. Tímamörk 4-2 og sjö mættu til leiks. Þar sigraði Sigurður Eiríksson með 5,5 vinninga af 6; Elsa María Kristinardóttir fékk 5 og Smári Ólafsson 4.

Síðara mótið var háð á sunnudaginn, 15. desember með 10 mínútna umhugsunartíma. Þar voru keppendur 10 talsins og tefldu sex umferðir. Enn kom Sigurður fyrstur í mark; vann allar sínar skákir. Áskell varð annar með 5 og Stefán G Jónsson fékk 4.

Þátttaka í almennum mótum félagsins er aðeins að glæðast á ný og munar þar mestu að unga fólkið er nú duglegra að mæta; virðist ekki óttast það lengur að kljást við þá eldri og reyndari. Það veit á gott.

- Auglýsing -