Eftir tap í fyrstu umferð 89. Skákþings Akureyrar hefur Akureyrarmeistarinn frá 2024 nú spýtt í lófana og unnið fjórar skákir í röð og náð forystunni. Hún er þó naum, aðeins hálfur vinningur þegar tvær umferðir eru eftir af mótinu.
Úrslitin í 5. umferð:
Markús-Smári 1-0
Tobias-Stefán 0-1
Karl-Sigurður 0-1
Sigþór-Eymundur 0-1
Benedikt-Valur 1-0
Baldur og Björgvin sátu hjá.
Í skák efstu manna hallaði smenna nokkuð á Smára, en hann beit frá sér og hélt jafnteflismöguleikum á lífi þar til hann tapaði peði þegar miðtaflið var á leið út í endatafl. Með öflugum frelsingja á a-línunni ásamt ónotalegum hótunum gegn kónsstöðu Smára tókst honum að koma heilum vinningi í hús.
Tobias fékk snemma heldur lakara tafl eftir með hvítu eftir strategísk mistök gegn Caro-Kann vörninni. Hann mátti því þjást nokkuð lengi með lakara tafli, en var aldrei líklegur til að snúa því við gegn fv. unglingasmeitara Skákfélagsins (1968!). Reynslan sagði sumsé til sín.
Sigurður vann nokkuð öruggan sigur gegn Karli, að því sagnir herma. Pistilsritari sá hinsvegar aldrei skákina og segir því fátt um hana. Hið sama má segja um skák Benedikts gegn Val Darra. Ef honum fara engar sögur, aðrar en þær að hér var farið eftir bókinni.
Sigþór beitt Grand-Prix árásinni gegn Sikileyjarvörn Eymundar, en fékk litlu áorkað: lenti í vörn og smám saman í töpuðu peðsendatafli. Hér kom því reynslan enn við sögu.
Nú fer að líða að lokum skákþingsins og snýst þá allt um það hvort Markús nái að verja meistaratitil sinn. Þeirri spurningu kann að vera svarað strax í næstu umferð, en við sjáum hvað setur.
Þessir tefla:
Stefán og Markús
Sigurður og Eymundur
Smári og Benedikt
Tobias og Karl
Baldur og Sigþór
Valur Darri og Björgvin
Staðan og allt annað á chess-results
Næstsíðasta umferð verður telfd nk. miðvikudagskvöld kl. 18 og lokaumferðin fer svo fram sunnudaginn 2. febrúar

















