
Ítalir reyndust íslenska liðiðinu á HM öldungasveita erfiðir í enn eitt skiptið. Ísland varð að sætta sig við tap með minnsta mun 1,5-2,5 og þar með er búið að slökkva á öllum verðlaunavonum liðsins að þessu sinni.
Viðureign dagsins leit svona út:

Þröstur Þórhallsson hvíldi aftur í umferð dagsins en hann hefur glímt við veikindi undanfarna daga en verður vonandi klár í slaginn í lokaumferðinni, þekktur fyrir góðan endasprett!
Jóhann fékk svart gegn David Alberto og lenti í töluverðri lausamöl eins og oft vill verða í modern-byrjuninni. Alberto fékk færi á ótrúlegri leið sem tölvurnar benda á.
13.h6!?! er sérstaklega athyglisverður leikur. 13…Bf8 er svarað með 14.Bc4 d5 og 15.Rc6!! hvítur tekur svo á d5 með peði og leikur d6 og svartur er í köðlunum!
Alberto valdi aðra leið og bauð jafntefli stuttu síðar sem Jóhann þáði.
Margeir fékk upp þrátefli gegn Godena á öðru borði og varð líklegast að taka því annars er hvítur með ívið verra tafl.
Á þriðja borði hafði Helgi Ólafsson svart og þar kom líka upp þrátefli í jafnri stöðu.,
Jón L. Árnason lenti í erfiðri stöðu í miðtaflinu og var u.þ.b. að tapa peði þegar jafnteflin hrönnuðust inn á borðunum fyrir ofan. Jón sat eftir í súpunni og náði ekki að bjarga erfiðri stöðu gegn Carlo D’Amore.
Niðurstaðan tap með minnsta mun…
Úrslitin gera það að verkum að Ísland er dottið í tíunda sætið, enn með 10 stig og engir möguleikar á verðlaunasæti. Toppbaráttan er mögnuð, Kazakar, Bandaríkjamenn og Ítalir hafa allir 13 stig og lokaumferðin verður rosaleg!

Í lokaumferðinni mæta Íslendingar þéttu liði Slóvaka með Ftacnik á efsta borði.

Alls ekki auðveld pörun en strákarnir reyna vafalítið sitt besta til að laga lokastöðuna eins og hægt er.















