Heimsmeistaramót öldunga í skák hefst á morgun í Vrnjačka Banja í Serbíu. Mótið stendur til 14. nóvember og er teflt er í fjórum flokkum. Tæplega 400 keppendur taka þátt og rúmlega 1% þerra eru íslenskir!

Fyrir hönd Íslands taka þátt:

Opinn flokkur 50+ (124 keppendur)

  • GM Henrik Danielsen – er sá fimmti sigahæsti með 2472 skákstig
  • GM Hannes Hlífar Stefánsson – er sá tíundi stigahæsti með 2401 skákstig.

Meðal annarra keppenda eru GM Murtas Kazhgaleyev (KAZ, 2532), GM Kiril Georgiev (BUL, 2512), GM Jean-Marc Degraeve (FRA, 2485) og GM Michele Godena (ITA, 2447).

Konur 65+ (29 keppendur)

  • WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir – 13. stigahæst með 1994 skákstig
  • Sigurlaug Regina Friðþjófsdóttir – 26. stigahæst með 1713 skákstig.

Í þessum flokki er goðsögnin GM Nona Gaprindashvili (GEO, 2168) stigahæst. Nona er auðvitað fyrrverandi heimsmeistari kvenna og var meðal keppenda á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu 1964! Þess má geta að meðal keppenda í 50+ er sjálf GM Pia Cramling!

Tenglasafn

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn