Átta manna úrslitum á Íslandsmóti Símans í netskák 2026 lauk í gær með tveimur síðustu viðureignum átta manna úrslita. Þeir félagar úr landsliðinu Vignir Vatnar Stefánsson og Hilmir Freyr Heimisson tryggðu sér sína farmiða í undanúrslitin. Vignir lenti í hörkueinvígi og hafði Jón Kristinn undir 4-2 en Hilmir hélt áfram banastuði sínu og lagið Braga Þorfinns að velli 4-0.

Fyrri viðureign dagsins var FM Jón Kristinn Þorgeirsson gegn GM Vignir Vatnar Stefánsson. Vignir byrjaði betur og komst í 2-0. Jokkó beit frá sér með máti dagsins

36.Rh6+ Kf8 (36…Kh8 37.Rxf7#) og 37.Rxh7#

Vignir komst í 3-1 en Jokkó minkaði muninn í mikilli „sull-skák“ þar sem Jokkó hóf leika með 1.g4. Vignir var svo betri í úrslitaskákinni og leikar enduðu 2-4, Vigni í vil.

Í seinni viðureigninni mættust GM Bragi Þorfinnsson og Íslandsmeistarinn IM Hilmir Freyr Heimisson. Báðar stemmningsskákmenn, Bragi var mjög sterkur í deildakeppninni en Hilmir virðist vera í ham í netskákinni, vann 4-0 í 16-manna úrslitum og endurtók leikinn í gær gegn Braga! 4-0 niðurstaðan og Hilmir kominn áfram!

Lýsendur gærdagsins voru þeir Birkir Ísak og Björn Ívar og útsendingin er hér að neðan í heild sinni.

Fyrri úrslit í átta manna úrslitum

Á sunnudaginn 25. október tryggðu IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson og GM Jóhann Hjartarson sér sæti í undanúrslitum. Aleksandr lagði Helga Áss Grétarsson að velli og Jóhann vann Sigurbjörn Björnsson.

Átta manna úrslit

  • GM Jóhann Hjartarson – FM Sigurbjörn Björnsson (25. okt.) 3½-1½
  • IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson – GM Helgi Áss Grétarsson (25. okt.) 4-3
  • FM Jón Kristinn Þorgeirsson – GM Vignir Vatnar Stefánsson (1. nóv.) 2-4
  • GM Bragi Þorfinnsson – IM Hilmir Freyr Heimisson (1. nóv.) 0-4

Sigurvegarar mætast í undanúrslitum sunnudaginn 8. nóvember og úrslitin fara fram 15. nóvember.

Mótið er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands í samstarfi við Skáksamband Íslands og Sjónvarp Símans. Verðlaunafé er 125.000 kr. fyrir fyrsta sæti, 75.000 kr. fyrir annað sæti og 25.000 kr. fyrir þriðja og fjórða sæti.

Beinar útsendingar verða á Símanum Sport og einnig er hægt að fylgjast með á YouTube- og Twitch-rásum RÍSÍ.

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn