Í dag fór fram 7. umferð á Ljubljana Chess Festival og íslensku skákmennirnir þrír í baráttunni sem fyrr. Þar var helst að frétta að Björn Þorfinnsson náði góðum sigri og læðist meðfram veggjum í toppbaráttuna. Á sama tíma gerði Bragi Þorfinnsson aftur jafntefli í skák sem hefði átt að enda með sigri. Sigurbjörn Hermannson náði í sigur í dag.
Björn mætti í dag IM Mencinger (2259) með svart. Greinilegt var að Mencinger er gömul kempa en nokkuð var af heimamönnum að fylgjast með skákinni. Birni leiddist því ekkert að sýna góð tilþrif á köflum. Byrjunin var lengst af í jafnvægi. Björn hafði smá áhyggjur í þessari stöðu.
Áhyggjurnar beindust að 14.Hfc1 0-0 15.Hc7!?
Björn hafði hinsvegar séð að 15…Hb8! væri eini leikurinn til að svara 16.Dxa7 með 16…Rd6!!
Sá gamli lék hinsvegar 14.Re5 og skákin áfram í jafnvægi. Björn náði að endurheimta smá rými og á fljótlega komst hann í nokkuð þægilegt endatafl. Björn hefur í gegnum tíðina oft verið sterkur í svellinu í endatöflum og hann gaf peð til að ná c-peði hvíts og fá hættulegt frípeð. Gæði umfram magn. Björn lagði kempuna að velli og kom sér í góða stöðu.
Þetta var annar sigur hans í röð og sá þriðji í síðustu fjórum umferðum – skýr merki um að hann sé kominn í alvöru gír. Hann er nú með 5 vinninga og mætir FM Leo Pecnik (2274) frá Króatíu í næstu umferð.
Bragi fékk Skrbec (2255), með svörtu í Drekanum. Þetta varð dýmaísk stöðubarátta þar sem Bragi byggði upp mjög góða stöðu – en náði því miður ekki að klára dæmið.
Bragi stendur því í 4,5 vinningum og fær FM Assylov (2264) í 8. umferð – Bragi þarf sigur þar!
Sigurbjörn Hermannsson náði þriðja sigri sínum á mótinu, að þessu sinni gegn Samotorcan (1732). Hann hefur nú 3 vinninga og mætir Dusan Cepon (2102) í næstu umferð.
Næst síðasta umferð mótsins fer fram á morgun og ljóst að Björn og Bragi eru enn í ágætis stöðu til að enda mótið með ágætis árangri.
Ljubljana mótið heldur áfram á morgun með 8. umferð. Við fylgjumst áfram með íslensku keppendunum á lokametrunum.
















