Áttunda umferð var tefld á Ljubljana Chess Festival í dag, og þrátt fyrir vonir um góðan endasprett íslensku keppendanna, þá var dagurinn viss vonbrigði og úrslitin ekki góð – með enn einn svekkjandi úrslit og tap hjá Braga, jafntefli hjá Birni og tapi hjá Sigurbirni.


♟️ Björn heldur jafnvægi

IM Björn Þorfinnsson fékk FM Leo Pecnik (2274) frá Króatíu með hvítu. Skákin þróaðist í rólega Kóngsindverska vörn þar sem hvítur fékk smávægilegt frumkvæði, en svartur komst yfir í vænlegt endatafl. Björn reyndi eins og hann gat að pressa en Pechik hélt jafnteflinu og á köflum mátti Bjössi passa sig.

Björn er nú með 5,5 vinning og fer inn í lokaumferðina með það markmið að klára með stæl!

▶️ Sjá skákina á Chess.com


❌ Bragi með hiksta í afdrifaríkri skák

GM Bragi Þorfinnsson mætti FM Miras Assylov (2264) frá Kasakstan með hvítu, og upp kom kóngsindversk vörn og fékk Bragi fínt miðtafl. Í flókinni stöðu tók hann skarpa stefnu með Nc7 og Nd5 og vörn Assylovs var bæði nægilega þétt og beitt.

Þegar taflið opnaðist um 30. leik fékk svartur hættulegt frumkvæði og Bragi náði ekki að stöðva innrás hróks og peða svarts. Niðurstaðan varð tap eftir langa og orkufreka skák.

Bragi er nú með 4,5 vinninga og utan keppni um toppsæti, en getur tryggt ásættanlega niðurstöðu með sigri á morgun.

▶️ Sjá skákina á Chess.com


📉 Erfitt hjá Sigurbirni

Sigurbjörn Hermannsson tefldi á 48. borði gegn Dusan Cepon (2102) frá Slóveníu. Sigurbjörn tapaði sinni skák og hefur nú 3 vinninga þegar ein umferð er eftir.


Lokaumferð mótsins fer fram á sunnudag. Björn teflir við pólskan alþjóðlegan meistara með svipuð stig, Bragi fær líka Pólverja og því um hálfgerðan landsleik að ræða! Sigurbjörn mætir slóvenskum heimamanni og með sigri bjargar hann mótinu nokkuð vel stigalega.

Við fylgjumst áfram með og vonum að lokaumferðin gefi vel fyrir okkar menn! 🇮🇸♟️

- Auglýsing -