Hið vinsæla Sumarskákmót Fjölnis var haldið í 20. skipti í gær, 8. maí. Þátttakan brást ekki frekar en fyrri daginn því 101 skákkrakkar skráðu sig til leiks. Vinsældir Sumarskákmótsins eru ekki síst fyrir þær sakir að fjöldi áhugaverðra verðlauna er í hámarki.
Hátíðin í Rimaskóla hófst á mínútunni 4 en þá var Íslandsmeistarinn Helgi Áss Grétarsson mættur og tefldi fjöltefli í klukkustund á 12 borðum. Krakkarnir þyrptust strax að Íslandsmeistaranum og „bekkurinn“ fullsetinn allan tímann.
Kjartan Eggertsson forseti Rótarý Grafarvogur var heiðursgestur mótsins að þessu sinni en Rótarýklúbburinn gaf alla verðlaunagripi mótsins. Kjartan ávarpaði þátttakendur og afhenti æfingameisturum vetrarins verðlaunagripi, þeim Fjölniskrökkum Emilíu Emblu og Tristani Fannari. Kjartan lék loks fyrsta leikinn fyrir Sigrúnu Töru sem er liðsmaður skáksveitar Rimaskóla.
Vegna fjölda þátttakenda tók hver umferð og hver pörun góðan tíma. Eftir 5 umferðir og jafna og spennandi keppni voru úrslitin ljós.
Rótarý-bikarana hlutu þau Theodór Helgi Eiríksson Foldaskóla í eldri flokki, Dagur Sverrisson Vesturbæjarskóla í yngri flokki og Sigrún Tara Sigurðardóttir Rimaskóla í stúlknaflokki. Verðlaunin 50 dreifðust á efstu sætin, þá sem náðu 3 vinningum af 5.
Verðlaunin voru ekki af verri endanum; Sumarleikföng og spil frá Hagkaup, Gjafabréf frá Domino´s og SAM-bíóunum, íþróttahandklæði frá Jóa útherja og gjafabréf frá Bókabúð Grafarvogs.
Skákstjórar voru þeir Helgi Árnason formaður Skákdeildar Fjölnis og Gauti Páll Jónsson. Þeir nutu aðstoðar foreldra við mótið, verðlaunaafhendingu og samantekt.















