Laganefnd Skáksambands Íslands hefur unnið nokkrar tillögur að lagabreytingum sem lagðar verða fyrir á aðalfundi sambandsins á Blönduósi 14. júní.
Tillögur að breytingum á lögum og skáklögum ber að senda stjórn SÍ í síðasta lagi 25. maí, sbr. 16. gr. laga SÍ.
Breytingatillögurnar má sjá hér.
Hér á eftir verður stiklað á stóru í tillögunum og rök færð fyrir þeim.
Kosning stjórnar SÍ
Sú hefð hefur myndast að forseti skáksambandsins tilkynni á aðalfundi þá aðila sem hann leggur til að verði í stjórn. Til þess að auka lýðræðislega ásýnd stjórnarkjörsins er lögð fram sú breytingartillaga að framboði skuli skilað inn til framkvæmdastjóra sambandsins í síðasta lagi 3 dögum fyrir aðalfund.
Þá er lagt til að í stað þess að tilkynning um framboð til embættis forseta berist skrifstofu SÍ skuli þau berast formanni kjörbréfanefndar. Þetta er gert svo frambjóðandi sé ekki settur í þá aðstöðu að þurfa að tilkynna sitjandi forseta að hann ætli gegn honum.
Skáklög skáksambands Íslands
Hér er verið að koma til móts við þá umræðu sem kom upp í vetur í kringum Íslandsmót skákfélaga.
Í fyrsta lagi er settur fram tímafrestur fyrir sveitir sem ætla að afþakka sæti í deild eða óska eftir að vera færðar niður.
Í öðru lagi eru lagðar fram þrjár tillögur fyrir fundinn varðandi afdrif þeirra sveita sem óska eftir að vera færðar niður um deild.
- Tillaga A – Óski félag eftir að vera fært niður um deild skal sveit félagsins færast niður í neðstu deild.
- Tillaga B – Óski félag eftir að vera fært niður um deild skulu allar sveitir félagsins færast niður í neðstu deild.
- Tillaga C – Óski félag eftir að vera fært niður um deild skal sveit félagsins færast niður um eina deild.
Í þriðja lagi er stjórn SÍ veitt heimild til þess að fara framhjá þessum reglum á þeim forsendum að þátttaka félags í Úrvalsdeild hafi neikvæð áhrif á samkeppni í deildinni, og þá í samráði við félag sem tekur sæti í Úrvalsdeild.
Lög um skákskóla Íslands
Landslög um skákskóla Íslands féllu niður um áramótin og hefur skólinn verið í ákveðnu lagalegu tómarúmi síðan. Ný lög skáksambandsins um skákskóla Íslands fylla í þetta tómarúm. Lögin eru unnin í samráði við skólastjóra skákskólans.
















