(Mynd: Thor Kvakkestad)

Aleksandr Domalchuk-Jonasson heldur áfram að „hreinsa“ á kappskákmóti í Taiwan sem hófst í fyrradag! Aleksandr er á ferðalagi um Asíu og mun tefla á nokkrum mótum hér og þar um álfuna. Vignir Vatnar er væntanlegur til Asíu einnig og þeir munu hittast síðar í mánuðinum.

Mótið sem Aleksandr tekur þátt í nefnist 2025 Asian Dragons International Chess Tournament. 27 keppendur taka þátt í opnum flokki þar sem tefldar eru 9 umferðir, tvær á dag nema lokaumferðin. Okkar maður er stigahæstur en aðeins einn keppandi utan hans hefur yfir 2000 elóstig. FM Watanatbe hefur ekki enn komist á efsta borð að glíma við Aleksandr!

Aleksandr hefur lokið þremur keppnisdögumm og hefur 6 af 6. Skákir fimmtu og sjöttu umferðar má sjá í livecloud-tenglinum að neðan. Sasha hefur náð að vinna nokkuð þægilega sigra sem fyrr og er vert að líta á lokaleikin í fimmtu umferð sem er nettur þó einfaldur sé.

- Auglýsing -