Kristján Örn Elíasson hefur í tvö ár stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.

Í gær mætti mættu FIDE-meistararnir Símon Þórhallsson og Sigurbjörn Björnsson, í þáttinn.

Í kynningu um þáttinn segir:

FIDE-meistararnir Símon Þórhallsson og Sigurbjörn J. Björnsson fara um víðan völl í spjalli sínu við Kristján Örn í þættinum. Rætt er um skák á Íslandi fyrr og nú, nýskipuð keppnislið Íslands sem fara í haust til Batumi í Gerorgíu á Evrópumóti landsliða í skák, heimsbikarmót kvenna sem nú stendur yfir einnig í Batumi í Georgíu, Viðeyjarhraðskákmótið sem haldið var í Viðey um helgina, ferðalög þeirra félaga til Austur-Evrópu og margt fleira skemmtilegt og fróðlegt.

Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

- Auglýsing -