Alþjóðlega skáksambandið (FIDE) tilkynnti 18. júlí 2025 að rússneskt kvennalið fái að keppa á Heimsmeistaramóti landsliða 2025, sem fram fer í Linares á Spáni í nóvember. Þessi ákvörðun, sem leyfir liðinu að keppa undir hlutlausum fána FIDE án rússneskra þjóðfánans, er háð samþykki Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC). Akvörðunin markar verulega breytingu á stefnu FIDE, en rússnesk og hvítrússnesk lið hafa verið útilokuð frá liðakeppnum FIDE síðan í mars 2022 vegna innrásar Rússlands í Úkraínu.
Viðbrögð Evrópska skáksambandsins (ECU)
Evrópska skáksambandið (ECU), sem í eru 54 evrópsk skáksambönd, gaf út yfirlýsingu þar sem það lýsir yfir mikilli andstöðu við ákvörðun FIDE. Meðal annars út frá niðurstöðu FIDE-þingsins í Búdapest 2024. ECU telur að refsiaðgerðir gegn rússneskum liðum eigi að haldast óbreyttar þar til pólitískar aðstæður í Úkraínu breytast. Þess má geta Skáksambands Rússlands sagði sig úr ECU og gekk í Skáksamband Asíu árið 2023 vegna óánægju með refsiaðgerðir ECU.
Í yfirlýsingu sinni sagði ECU:
„ECU heldur fast við þá afstöðu að refsiaðgerðir gegn þátttöku rússneskra liða eigi að haldast óbreyttar þar til aðstæður, sem kölluðu á þessar ráðstafanir, eru að fullu leystar. Að leyfa rússneskum liðum að keppa, jafnvel undir hlutlausum fána, sendir röng skilaboð um skuldbindingu alþjóðlega skákheimsins við sanngirni, heiðarleika og samstöðu.“
ECU benti einnig á að ákvörðunin var ekki á dagskrá FIDE-ráðsins og birtist fyrst í rússneskum ríkisfjölmiðlum.
Yfirlýsing ECU
Svar Rússneska skáksambandsins
Rússneska skáksambandið (CFR) fagnaði ákvörðun FIDE. Alexander Tkachev, framkvæmdastjóri CFR, sagði í yfirlýsingu:
„Þetta eru auðvitað mjög góðar fréttir. Ákvörðunin er afar jákvæð. Við höfum enga vafa um að HM kvennalandsliða verði fyrsta keppnin þar sem lið okkar teflir eftir langt hlé. Við bíðum eftir svipaðri ákvörðun varðandi liðið okkar í opnum flokki.“
Jafnframt gagnrýndi Tkachev ECU harðlega og talaði um ECU sem óvin.
Sjá skjáskot af frétt Tass (þýtt yfir á ensku)
Hvernig er staðan?
Chess24.com fjallaði um málið í grein sinni, „FIDE Sparks Protests By Allowing Russian Team To Compete In Major Event,“ og deildi sjónarmiðum ECU. Greinin bendir á að ákvörðunin stríði gegn niðurstöðum FIDE-aðalfundarins í Búdapest 2024, þar sem tillögum um að aflétta refsiaðgerðum var hafnað með miklum meirihluta þar með talið Íslands, hinna Norðurlandanna og flestra Evrópuríkja.
FIDE plans to allow the Russian women’s team to compete in the Women’s World Team Championship in November this year. The European Chess Union and others have protested: https://t.co/6bg1ECsSi3
— chess24 (@chess24com) July 23, 2025
Þess má geta ekkert skáksamband Norðurlanda leyfir þátttöku rússneskra skákmanna 16 ára og eldri í sínu heimalandi. Svipaður reglur gilda í mjög mörgum Evrópulöndum.
Það er ástæða til að ætla að mikið vatn renni til sjávar áður en kemur að þátttöku Rússa á HM kvennalandsliða á Spáni!
Höfundur fréttar er einn varaforseta ECU.
















