Íslandsmót barna- og unglingasveita 2025

    0
    327
    Hvenær:
    30. nóvember, 2025 @ 13:00 – 17:00
    2025-11-30T13:00:00-01:00
    2025-11-30T17:00:00-01:00
    Hvar:
    Miðgarður
    Vetrarbraut 18
    210 Garðabær
    Ísland
    Tengiliður:
    Taflfélag Garðabæjar
    Íslandsmót barna- og unglingasveita 2025 @ Miðgarður | Garðabær | Garðabær | Ísland

    Íslandsmót barna- og unglingasveita taflfélaga 2025 fer fram sunnudaginn, 30 nóvember í Miðgarði, fjölnotaíþróttahúsinu í Garðabæ. Taflmennskan hefst kl. 13 á 2 og 3 hæð. Liðstjórar staðfesta lið sín ekki seinna en kl. 12:45

    Boðið verður upp á 3 aldursflokka:

    • Opinn flokkur: Sigurvegari þessa flokks er Íslandsmeistari. 7. umf.
    • B flokkur: 4-7. bekkur – 5-7 umf.
    • C flokkur: 3. bekkur og yngri – Allt að 5. umf.

    Heimilt er að keppa upp fyrir sig í flokki.

    Mótið er fyrir skákmenn fædda 2010 og síðar.

    Tímamörk verða 8 mínútur + 3 sek á hvern leik.

    Þátttökugjöld eru 10.000 kr. fyrir A lið og 4

    5.000 kr. fyrir hvert lið eftir það. Hámarksgjald fyrir félag er 25.000. kr

    Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. A og B lið hvers félags tefla saman í fyrstu umferð séu þau í sama flokki

    Skráningu liða þarf að skila inn eigi síðar en kl. 23:59 fimmtudaginn 27. nóvember.

    Verðlaun og oddastig

    Veitt verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar í opnum flokki, b-flokki og c-flokki

    *Oddastig séu sveitir jafnar að vinningum

    1. Stig (match point)
    2. Innbyrðis viðureign
    3. Sonneborn-Berger
    4. Hlutkesti

    Skráningarform

    Skráðar sveitir

    - Auglýsing -