Íslandsmót barna- og unglingasveita taflfélaga 2025 fer fram sunnudaginn, 30 nóvember í Miðgarði, fjölnotaíþróttahúsinu í Garðabæ. Taflmennskan hefst kl. 13 á 2 og 3 hæð. Liðstjórar staðfesta lið sín ekki seinna en kl. 12:45
Boðið verður upp á 3 aldursflokka:
- Opinn flokkur: Sigurvegari þessa flokks er Íslandsmeistari. 7. umf.
- B flokkur: 4-7. bekkur – 5-7 umf.
- C flokkur: 3. bekkur og yngri – Allt að 5. umf.
Heimilt er að keppa upp fyrir sig í flokki.
Mótið er fyrir skákmenn fædda 2010 og síðar.
Tímamörk verða 8 mínútur + 3 sek á hvern leik.
Þátttökugjöld eru 10.000 kr. fyrir A lið og 4
5.000 kr. fyrir hvert lið eftir það. Hámarksgjald fyrir félag er 25.000. kr
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. A og B lið hvers félags tefla saman í fyrstu umferð séu þau í sama flokki
Skráningu liða þarf að skila inn eigi síðar en kl. 23:59 fimmtudaginn 27. nóvember.
Verðlaun og oddastig
Veitt verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar í opnum flokki, b-flokki og c-flokki
*Oddastig séu sveitir jafnar að vinningum
- Stig (match point)
- Innbyrðis viðureign
- Sonneborn-Berger
- Hlutkesti














