Frá upphafi níundu skákarinnar. Maria Emelianova/Chess.com

Heimsmeistarinn mætti til leiks í níundu skák heimsmeistaraeinvígisins með glóðarauga sem hann hlaut í fótbolta á frídeginum í gær.

https://platform.twitter.com/widgets.js

Magnús fór eftir ráðum Páls Magnússonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, þegar hann hóf skákina með enska leiknum.

Magnús fór hins vegar ekki eftir öllum ráðums Páls því hann vann ekki skákina. Magnús kom Fabi á óvart í byrjun skákarinnar

 

9. Bg5! Rxc3 10. bxc3 f6 11. Bc1

Hvítur fórnar tveimur tempóum til að fá svartan til að veikja sig með 10…f6. Strákurinn frá Brooklyn að eyða miklum miklum tíma og var um tíma með klukkustundar lakari tíma. Caruana kom mörgum mjög á óvart í 17…leik og var leikurinn gagnrýndur af mörgum skákspekingum.

 

17…Bxf3?! Kýs að einfalda stöðuna sennilega í trausti þess að að stöðuyfirburðir heimsmeistarans dugi aldrei til vinnings.

https://platform.twitter.com/widgets.js

 

18. Db3+ Kh8 19. Bxf3 Rxd4 20. Bxd4 Dxd4 21. e3 De5 22. Bxb7 Had8.

Magnús óð áfram með h-peðið og virðist hafa ofmetið framrásina.

 

25. h5? gxh5! 26. Dc4 f5! 27. Bf3 h4! Snjöll varnartaflmennska hjá Fabi. Staðan einfaldaðist í framhaldinu og jafntefli samið í 56 leikjum. Þá löngu tímabært.

Heimsmeistarinn var ekki ánægður að skák lokinni.

https://platform.twitter.com/widgets.js

https://platform.twitter.com/widgets.js

Grein Chess.com með skýringum Sam Shankland um skákina má finna hér.

Ingvar Þór Jóhannesson fer yfir skákina á Youtube.

Tíunda skákin fer fram á morgun.

Hvar er best að fylgjast með einvíginu:

- Auglýsing -