Norski snillingurinn Magnus Carlsen heldur áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni og náði sér í sinn 20. heimsmeistaratitil. Hann náði í heimsmeistaratitilinn í atskák fyrir nokkrum dögum en í dag bætti hann við heimsmeistaratitlinum í hraðskák, í níunda skiptið sem hann vinnur þetta mót! Okkar maður Vignir Vatnar Stefánsson átti ekki jafn góðan dag í dag og í gær en endaði með 10 vinninga af 19 mögulegum og má vel við una, reynslunni ríkari!
Í gær voru tefldar 13 umferðir en í dag voru tefldar 6 umferðir og svo farið í útsláttarkeppni, undanúrslit og svo úrslit. Kíkju aðeins á gang mála í lokaumferðunum og svo úrslitum
14. umferð
Vignir mætti 16 ára úkraínskum stórmeistara Samunenkov og hafði hvítt. Vignir fékk ágætis færi í miðtaflinu en náði ekki að nýta þau og missti þráðinn og hótanir svarts gegn f2 peðinu urðu of sterkar.
Þarmeð lauk 11-skáka taplausri hrinu Vignis á heimsmeistaramótinu í hraðskák!
Carlsen byrjaði heldur ekki vel í fyrstu skák á seinni keppnisdegi. Aftur riðlaði hann mönnunum í tímahraki og nú ákvað hann að ýta bara á klukkuna í stað þess að falla á tíma við að laga stöðuna. Honum var dæmt tap.
Það er óhætt að segja að Carlsen hafi verið kominn með bakið upp við veginn hér, hann mátti ekki við neinum slysum og þurfti nánast að hreinsa rest til að komast í topp 4.
15. umferð
Vignir tapaði nokkuð baráttulaust gegn 19 ára írönskum stórmeistara, mjög sterkum skákmanni í 15. umferðinni. Vignir lengi af stað á seinni keppnisdegi eins og þeim fyrsta.
16. umferð
Vignir fékk að halda áfram að safna andstæðingum frá Kazakhstan. Það hlýtur að vera að hann teflt við flesta Kazaka á báðum mótunum samtals! Alþjóðlegi meistarinn Aldiyar Ansat gaf engin færi á sér en Vignir heldur aldrei í hættu og jafnteflið rökrétt úrslit.
17.umferð
Fyrsti sigur dagsins kom gegn 19 ára frönskum alþjóðlegum meistara, Augustin Droin. Vignir hafði betur í miðtaflsflækjum í óræðri stöðu. Vignir slapp með skrekkinn nokkrum sinnum, einna helst í endataflinu þegar hann lék sig í mát í einum leik en Frakkinn missti sem betur fer af því og Vignir vann nokkrum leikjum síðar.
18.umferð
Vignir virtist vera að komast í gír og klár í góðan endasprett hér þegar hann mætti bandaríska stórmeistaranum Andrew Hong, 21 árs strákur. Vignir náði að plata hann í miðtaflsflækjum og fékk kolunnið tafl með drottningu og mann fyrir tvo hróka. Hong náði að hanga inni í taflinu með hættulegar hótanir gegn hvíta kóngnum og Vignir fann ekki náðarhöggið. Fór svo að Vignir missti skákin í jafntefli og svo niður í tap, gríðarlega svekkjandi.
Vignir hér í fínum gír með 4 vinninga af 7 eða +1 eins og oft er talað um þ.e. vinningaskákir umfram tapskákir.
19.umferð
Í lokaumferðinni gerði Vignir jafntefli við vinn sinn Shawn Rodrigue-Lemieux en þeir eru bæði góðir félagar og liðsfélagar í Breiðablik. Shawn hefur m.a. sett inn gestafyrirlestra á VignirVatnar.is síðuna góðu.
Lokaniðurstaðan því 10 vinningar af 19 sem er mjög viðundani. Hefði verið gaman að ná öðrum viðlíka degi og fyrsta deginum en þessi mót eru grjóthörð og oft stutt milli hláturs og gráts í þessum skákum. Vignir endaði í 94. sæti og fyrir neðan hann voru kappar á borð við Hans Niemann og fleiri sterkir stórmeistarar.
Vignir hefur tekið saman daginn á Instagram:
View this post on Instagram
Magnus Carlsen setti svo sannarlega í gírinn eftir tapið í fyrstu umferð dagsins og kláraði daginn með 4,5 af 5 og komst inn í topp 4 til að tefla um titilinn. Efstir á mótinu voru Erigaisi (15 vinningar), Caruana (14 vinningar), Carlsen (13,5) og Abdusattorov (13 vinningar og bestu oddastigin).
Þessir fjórir mættust í undanúrslitum, Erigaisi gegn Abdusattorov og Caruana gegn Carlsen.
Abdsuattorov vann nokkuð auðveldlega 2,5-0,5 gegn Erigaisi og Magnus hafði Fabiano 3-1 með því að vinna tvær síðustu skákirnar.
Í úrslitum var það reynslan og endatafls-skilningur Carlsens sem skildi á milli. Carlsen vann fjórðu skákina og þar með einvígið 2,5-1,5.
60…e3! var gegnumbrotið og eftir 61.Bxe3 Bxg3 molnaði Abdusattorov niður og Carlsen gat fagnað.
Eins og áður sagði níundi hraðskákheimsmeistaratitill Carlsen sem er hreint ótrúlegt. Kvennamegin hafði Bibisara Assubayeva betur gegn Önnu Muzychuk og vann sinn þriðja hraðskáktitil.
FIDE útsending dagsins:
- Instagram Vignis | Mikið af behind the scenes vídeóum og efni! Vinsamlegast kasta á LIKE og FOLLOW á Vigni á Instagram!!
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results | kvennaflokkur
- Beinar lýsingar
- Beinar útsendingar | kvennaflokkur















