35 keppendur mættu í Miðgarð á mánudagskvöld til að taka þátt í Sprengjumóti TG og Stjörnuljósa. Svo góð var þátttakan að hún reyndi á húsakynni Taflfélags Garðabæjar en þröngt mega sáttir sitja við taflmennsku.
Sagan segir að glæsilegir vinningar hafi freistað nokkurra ungra skákmanna svo mikið að þeir létu félaga sína ekki vita að þeir ætluðu að mæta til að minnka samkeppnina. Þeim var því öllum brugðið að sjá hver annan við upphaf mótsins.
Óvænt úrslit litu ljós strax í fyrstu umferð þegar stigahæsti keppandinn Oliver Jóhannesson lék af sér biskup í steindauðri stöðu gegn Hirti Ingva Jóhannssyni og tapaði. Hjörtur lagði þar grunninn að stigaverðlaunum kvöldsins.
Arnar Milutin Heiðarsson var sigurvegari mótsins með 8 vinninga í 9 skákum. Hann tapaði aðeins fyrir Jóni Trausta Harðarsyni sem var efstur eftir 5 umferðir slakaði svo aðeins of mikið á og missti af lestinni. Sæberg Sigurðsson tók mótið í törnum, vann fyrstu 4 og síðustu 3 og endaði annar með 7 vinninga af 9.
Guðrún Fanney Briem hélt uppteknum hætti eftir flottan árangur á Ríkharðsmótinu daginn áður og vann U18 verðlaunin með 6 vinninga af 9.
Tómas Tandri klippti saman eitt af sínum frábæru myndböndum af mótinu:
Taflfélag Garðabæjar þakkar Stjörnuljósum fyrir samstarfið á mótinu og óskar íslenskum skákmönnum gleðilegs nýs árs!


















