Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti Skáksambands Íslands

Kæru skákmenn og konur!

Árinu 2025 fer senn að ljúka og þar með fyrstu sex mánuðum mínum í starfi forseta Skáksambands Íslands. Það er óhætt að segja að margt hafi gengið á á þessum tíma og reynslan verið bæði lærdómsrík og afar áhugaverð.

Starfstíminn hófst á veglegri 100 ára afmælishátíð Skáksambands Íslands á Blönduósi, þar sem við fengum þann heiður að bjóða forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, velkomna á sinn fyrsta skák viðburð. Sumarið var að öðru leyti fremur rólegt og fór að stórum hluta í að kynnast nýju hlutverki, starfsemi sambandsins og þeim fjölbreyttu verkefnum sem því fylgja. Fljótlega mótaði ég mér skýra forgangsröðun og hóf vinnu við þau málefni sem mér þóttu brýnust.

Ég bauð stórmeisturum sem hlutu styrk úr afrekssjóðnum í skák, auk þriggja ungra skákmanna sem valdir höfðu verið í landsliðið, til fundar. Nánast allir þáðu boðið og urðu umræðurnar bæði gagnlegar og uppbyggilegar. Úr þeim spruttu fjölmargar hugmyndir sem nýst hafa í áframhaldandi stefnumótun. Í kjölfarið var unnin afreksstefna og áætlun um hvernig best sé að stefna markvisst að settum markmiðum. Afreksstefnan verður kynnt betur á nýju ári. Jafnframt voru verkferlar innan sambandsins skýrðir og stefnt er að frekari endurskoðun reglugerða, einkum þeirra sem lúta að styrktarsjóði SÍ og vali á alþjóðlegum barna- og unglingamótum.

Október reyndist krefjandi mánuður, þar sem Evrópska skáksambandið (ECU) ákvað að halda flest sín helstu mót á um sex vikna tímabili. Þetta skapaði mikið álag, sérstaklega fyrir þjálfara okkar, sem þó stóðu sig með mikilli prýði líkt og alltaf. Vegna þessa þurfti að fresta mótahaldi hérlendis að töluverðu leyti, enda var stór hluti landsliðsfólks erlendis í lengri tíma. Síðustu tveir mánuðir ársins urðu því þyngri í mótahaldi en almennt, og ljóst er að slíkt fyrirkomulag þarf að skoða betur til framtíðar. Á nýju ári verður mótaskipulag tekið til endurskoðunar og mögulega verða einhver mót færð yfir á vorönn.

Ég sótti í fyrsta sinn aðalfund ECU og síðar afar krefjandi og um margt kaótískan aðalfund FIDE. Á aðalfundi ECU var Skáksamband Íslands sérstaklega heiðrað fyrir þrautseigju á tímum heimsfaraldurs, en haustið 2021 vorum við fyrst til að halda alþjóðlegt mót fyrir hönd ECU, EM einstaklinga. Á Gunnar Björnsson þáverandi forseti miklar þakkir skilið fyrir þá miklu vinnu sem lagt var í verkefnið. Það hefur verið bæði fróðlegt og áhugavert að kynnast alþjóða skákheiminum betur og ég hlakka til áframhaldandi þátttöku á þeim vettvangi.

Mikil framþróun hefur orðið í starfi Skákskóla Íslands. Nemendum hefur fjölgað hratt, námskeiðum sömuleiðis, og stuðningur við félög og skóla er í frábærum höndum Björns Ívars skólastjóra. Nýtt starf er að spretta upp víða um land og aldrei hafa jafn margir nemendur af landsbyggðinni tekið þátt í vikulegri afreksþjálfun skólans. Tækniúrbætur hafa verið verulegar og halda áfram af miklum krafti. Þá voru haldin tvö þjálfaranámskeið á árinu og er stefnt að frekari þróun á því sviði.

Skáksamband Íslands hefur um nokkurt skeið haft það að markmiði að auka sýnileika sinn á samfélagsmiðlum og hefur Tómas Tandri komið afar sterkur inn í stjórnina á því sviði. Myndbirtingar frá mótum hafa aukist á ný eftir stutt hlé og myndbönd frá mótum reynst mjög vel. Á nýju ári er stefnt að enn frekari útbreiðslu skákar á samfélagsmiðlum, meðal annars með kynningu á æfingum félaganna. Upprifjun á sögulegu efni hefur einnig verið ánægjuleg viðbót og gaman að rifja upp hina ýmsu viðburði úr sögu íslenskrar skákar. Ég hvet alla sem hafa hugmyndir um efni eða nýtingu samfélagsmiðla til að hafa samband við mig eða Tómas.

Auðvitað hefur ekki allt gengið snurðulaust fyrir sig og gagnrýnisraddir heyrst, eins og eðlilegt er í lifandi starfi. Það er því margt sem verður tekið til skoðunar á nýju ári. Meðal annars þarf að huga að úrbótum á aðstæðum í Rimaskóla fyrir seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga. Rimaskóli hefur lengi verið heimili stærstu móta okkar og vil ég færa Helga, formanni Fjölnis, og öllu hans öfluga sjálfboðaliði, kærar þakkir fyrir frábæra vinnu. Alltaf er þó svigrúm til umbóta og verður meðal annars skoðað að bæta salernisaðstöðu, sýnileika úrslita, hljóðvist og fleiri þætti.

Bent hefur verið á nauðsyn úrbóta á heimasíðu SÍ og skak.is, sem og á mikilvægi aukins samráðs við formenn félaga. Á nýju ári stefni ég því á að bjóða öllum formönnum skákfélaga landsins á fund þar sem þeir geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri, bent á það sem vel gengur og það sem betur má fara. Þó ég boði bara formenn á minn fund þá vil ég benda á að síminn minn og pósthólfið er alltaf opið fyrir skákáhugamenn enda fátt sem mér finnst  skemmtilegra en að ræða úrbætur og framtíðarmöguleika þeirrar frábæru íþróttar sem skákin er.

Að lokum vil ég færa öllu skáksamfélaginu mínar bestu þakkir fyrir samstarfið, samtölin, gagnrýnina og stuðninginn á þessum fyrstu mánuðum mínum í starfi. Það er forréttindi að fá að starfa með svo öflugu, fjölbreyttu og ástríðufullu fólki sem lætur sig framtíð skákarinnar á Íslandi varða. Ég hlakka til áframhaldandi samtals, samvinnu og uppbyggingar á nýju ári og hvet ykkur öll til að hafa áfram samband, koma með hugmyndir og taka þátt í þeirri vegferð sem fram undan er.

Með ósk um farsælt og skemmtilegt skákár á nýju ári.

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir,
Forseti Skáksambands Íslands

- Auglýsing -