Ritstjórn Skák.is óskar skákáhugamönnum nær og fær gleðilegs nýs (skák)árs og þakkar fyrir hið liðna.

Það gekk ýmislegt á liðnu ári. Glæsileg afmælishátíð á Blönduósi og einkar vel heppnað Reykjavíkurskákmót standa þar uppúr að mati ritstjórnar. Nýr forseti SÍ tók við og skákframtíðin á Íslandi er björt.

Skákmenn geta hafið taflmennsku strax á nýársdag.

Nýársmót SA fer fram í dag og TR-ingar halda fimmtudagsmót á Nýársdegi.

Skákþing Kópavogs hefst 2. janúar, Skákþing Reykjavíkur þann 7. janúar, Skákþing Akureyrar þann 13. janúar og skákmenn fjölmenna til Færeyja í 9.-11. janúar.

Nóg að gera – jei!!

 

 

- Auglýsing -