Skákdeild Hauka kynnir með stolti mánaðarleg skákmót!
Annað mótið verður haldið fimmtudaginn 15. febrúar, í Ásvöllum 1, veislusal.
Janúarmótið gekk vel og vann Ágúst Sindri Karlsson með fullu húsi!
Mótið hefst klukkan 19:45 og stendur til 21:45. Skráning fer fram á staðnum og byrjað er að taka við skráningum klukkan 19:30.
Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 4+3. Fjórar mínútur á mann að viðbættum þremur sekúndum á hvern leik. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Mótið er öllum opið. Við hvetjum Hafnfirðinga sérstaklega til þátttöku!
Þátttökugjöld:
Félagsmenn Hauka 18 ára og eldri: 500kr.
Félagsmenn Hauka 17 ára og yngri: Ókeypis
Utanfélagsmenn 18 ára og eldri: 1000kr.
Utanfélagsmenn 17 ára og yngri: 500kr.
- Auglýsing -
















