Þegar einni umferð er ólokið á Skákþingi Akureyrar eru Fidemeistararnir Jón Kristinn Þorgeirsson og Símon Þórhallsson jafnir í efsta sæti með fimm vinninga af sex. Með vinningi minna eru þeir Áskell Örn Kárason, Markús Orri Óskarsson og Rúnar Ísleifsson. Í lokaumferðinni teflir Jón Kristinn við Áskel, Símon við Rúnar og Markús við Benedikt Stefánsson. Gera verður ráð fyrir að baráttan um titilinn standi fyrst og fremst á milli Jóns Kristins og Símonar, en sú óvenjulega staða gæti komið upp ef þeim verður báðum fótaskortur og aðrir gera það sem til þarf, að þeir fimm sém hér eru nefndir verði allir jafnir með fimm vinninga. Hér er engu spáð, en vakin athygli á þessum möguleika sem væri þá einstakur í 89 ára sögu skákþingsins.
Lokaumferðin verður tefld sunnudaginn 8. febrúar og hefst kl. 13.
Verða fimm í efsta sæti á Skákþingi Akureyrar?
- Auglýsing -















