Suðurlandsmót grunnskólasveita 2026

    0
    33
    Hvenær:
    3. mars, 2026 @ 09:30 – 12:00
    2026-03-03T09:30:00-01:00
    2026-03-03T12:00:00-01:00
    Hvar:
    Félagsheimili Hrunamanna
    Flúðir
    Ísland
    Gjald:
    10000
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    5689141
    Suðurlandsmót grunnskóla í skák fer fram þriðjudaginn 3. mars nk. Mótið er sveitakeppni fyrir grunnskóla á Suðurlandi. Teflt verður í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum.
    Teflt er í tveimur flokkum. Annars fyrir 1.-7. bekk og hins vegar fyrir 8.-10. bekk. Fjórir tefla í hverri sveit.
    Mótið hefst kl. 09:30 og er áætlað því ljúki um kl. 12:00. Verðlaun fyrir 3 efstu sveitirnar í báðum flokkum.
    Flúðaskóli býður upp á létta hressingu um mitt mótið. Að sjálfsögðu er hægt að koma með nesti.
    Skráningarfrestur er til kl. 12, mánudaginn 2. mars.
    Mótshaldið er að þessu sinni samvinnuverkefni Flúðaskóla og Skáksambands Íslands. Þetta er í fjórða sinn sem mótið fer fram. Við hvetjum skóla á Suðurlandi til að taka þátt! Þátttökugjöld eru kr. 10.000 kr. á sveit en þá aldrei hærra en 20.000 kr. á skóla.
    Nánari upplýsingar í síma 820 6533 (Gunnar) eða skaksamband@skaksamband.is.
    - Auglýsing -