Formaður TG lét sig ekki vanta á Haukamót!

Skákdeild Hauka heldur mánaðarleg skákmót.

Nú er hægt að skrá sig fyrirfram hér, til að flýta fyrir!

Fjórða mótið verður haldið fimmtudaginn 16. apríl, að Ásvöllum 1, veislusal.

Úrslit janúarmóts  Ágúst Sindri Karlsson vann

Úrslit febrúarmóts Gauti Páll Jónsson vann

Úrslit marsmóts Þorvarður Fannar Ólafsson vann

Myndir frá mótunum

Mótið hefst klukkan 19:45 og stendur til 21:45. Skráning fer fram á staðnum og byrjað er að taka við skráningum klukkan 19:30.

Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 4+3. Fjórar mínútur á mann að viðbættum þremur sekúndum á hvern leik. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Mótið er öllum opið. Við hvetjum Hafnfirðinga sérstaklega til þátttöku!

Þátttökugjöld:

Félagsmenn Hauka 18 ára og eldri: 500kr.

Félagsmenn Hauka 17 ára og yngri: Ókeypis

Utanfélagsmenn 18 ára og eldri: 1000kr.

Utanfélagsmenn 17 ára og yngri: 500kr.

- Auglýsing -