Það verður (skóla)skákveisla um helgina 18. og 19. apríl. Þá fara fram tvö skólaskákmót í Rimaskóla. Íslandsmót barnaskólasveita (4.-7. bekkur) fer fram laugardaginn 18. apríl og Íslandsmót grunnskólasveita (8.-10. bekkur) fer fram sunnudaginn 19. apríl. Mótin hefjast kl: 13:00 báða daga. Liðsstjórar þurfa að mæta kl. 12:15 og staðfesta lið við skákstjóra 12:45.
Athygli er vakin á því að yngri nemendur geta mögulega teflt á báðum mótunum.
ÍSLANDSMÓT BARNASKÓLASVEITA (4.-7. BEKKUR)
Mótið fer fram laugardaginn 18. apríl kl. 13 í Rimaskóla. Tefldar verða átta umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 10+2 mínútur á skák fyrir hvern keppenda.
Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 4.–7. bekk en þó er nemendum úr 1.–3. bekk leyfilegt að tefla með en þá eingöngu í a- og b-sveit. Í hverri sveit mega vera allt að þrír varamenn.
Þátttökugjöld kr. 12.000 kr.- á sveit. Þó ekki hærra en 24.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verðlaunum fyrir efstu sveitir af landsbyggðinni.
Skráningarfrestur er til kl. 9, föstudaginn, 17. apríl.
Íslandsmeistararnir hljóta rétt til þátttöku á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fer í Svíþjóð í haust.
Rimaskóli varð Íslandsmeistari barnaskólasveita í fyrra.
- Skráningaform
- Þegar skráðar sveitir
- Chess-Results (væntanlegt)
ÍSLANDSMÓT GRUNNSKÓLASVEITA (8.-10. BEKKUR)

Mótið fer fram sunnudaginn 19. apríl í Rimaskóla. Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 10+2 mínútur á skák fyrir hvern keppenda.
Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 8.-10. bekk en þó er nemendum úr 1.–7. bekk leyfilegt að tefla með en þá eingöngu í a- og b-sveit. Í hverri sveit mega vera allt að þrír varamenn.
Þátttökugjöld kr. 12.000 kr.- á sveit. Þó ekki hærra en 24.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verðlaunum fyrir efstu sveitir af landsbyggðinni.
Skráningarfrestur er til kl. 9, föstudaginn, 17. apríl.
Íslandsmeistararnir hljóta rétt til þátttöku á Norðurlandamóti grunnskólasveita sem fram fer í Svíþjóð í haust.
Hvaleyrarskóli varð Íslandsmeistari grunnskólasveita í fyrra.
- Skráningaform
- Þegar skráðar sveitir
- Chess-Results (væntanlegt)

















