Annar þáttastjórnenda Chess After Dark, Leifur Þorsteinsson og Andri Steinn Hilmarsson sjálfstæðismaður og bæjarfulltrúi í Kópavogi mætast í hraðskákeinvígi núna í kvöld 16. apríl á Arena og hefst einvígið klukkan 20:00. Áhorfendur eru velkomnir, töfl verða á staðnum og góð stemmning.
Um er að ræða endurvakningu á Einvígi Aldarinnar sem var haldið fyrir tveimur árum síðan þegar Hörður Magnússon og Heimir Guðjónsson mættust.
Tefldar verða 10 hraðskákir og er einvígið talið algjört 50/50 – báðir keppendur eru álíka sterkir eða með í kringum 1.700 elóstig. Lengjan mat Leif örlítið líklegri 1.57 gegn 1.95 en stuðlar hafa nú jafnast.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Eftir myrkur (@chessafterdark)

Í streyminu verða hins vegar töluvert sterkari skákmenn en þar munu Alþjóðlegur meistari Björn Þorfinnsson og Fide meistari Ingvar Þór Jóhannesson lýsa skákunum auk þess sem von er á leynigesti sem er stórmeistari.
Hægt verður að fylgjast með streyminu hér í beinni útsendingu á Vísi og á twitch.tv/chessafterdark
Viðburðurinn verður á Lengjunni og verður hægt að tippa á einvígið þar.
- Auglýsing -