Landsliðsmaðurinn og alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson vann sigur í sjöttu umferð á opna Tælenska, alþjóðlegu móti í Bangkok. Dagur hefur fjórarn og hálfan vinning að loknum sex umferðum og í grennd við efstu menn. Landsliðskonan og FIDE-meistari kvenna Hallgerður Þorsteinsdóttir tapaði sinni skák, gegn enn einum indverskum andstæðingi.

Dagur á Tæland Open 2026 (Mynd: Vigdís Kristín)

Dagur hafði hvítt gegn U18 Indverja, Bijesh Devnath (1929). Upp kom kóngsindverji og miðtaflið í dýnamísku jafnvægi. Dagur hélt að hann væri að fá fína stöðu en missti af sterkri mögulegri leið Indverjans.

Hér hefði 27…Hexc4! verið sterkur. 28.Hxc4 dxc4 29.Be3 og þá 29…Hxb5!! og endataflið er bara unnið á svart.

Sem betur fer missti Bijesh af þessu og fór þess í stað samviskusamlega niður í logum í endataflinu. Fín úrslit fyrir Dag.

 

Hallgerður hafði hvítt gegn Indverjanum Bedi Sunny (1897) og varð að lúta í dúk að þessu sinni.

Í sjöundu umferð á morgun hefur Dagur svart gegn skákmanni frá Filipseyjum Paulo Bersamino (2434) en hann er alþjóðlegur meistari.

Um mótið:

241 skákmaður tekur þátt í A-flokki á Bangkok Open. Dagur er númer 45 í stigaröðinni en Hallgerður 127. Stigahæstur keppenda er „Lókurinn“ Loek van Wely en þekktastur keppenda og sá sem hefur oftast unnið mótið er önnur goðsögn, Nigel Short. Tefld er ein skák á dag, níu dagar.

- Auglýsing -