Vignir við upphaf 6. umferð á EM 2026 í Katowice. (Mynd: GB)

Vignir Vatnar Stefánsson náði í mikilvægan sigur í níundu umferð á Evrópumóti Taflfeálaga. Vignir lenti gjörsamlega í köðlunum gegn agressífri taflmennsku hinnar sókndjöfru serbnesku valkyrju Teodoru Injac. Eftir erfiðara byrjun vaknaði Vignir til lífsins, varðist harðri sókn og náði að snúa dæminu eftir að Teodora hafnaði þráskák og tefldi til vinnings. Hannes Hlífar gerði jafntefli í sinni skák, Hilmir Freyr varð að lúta í dúk og Josef Omarsson gerði aftur jafntefil gegn sterkum andstæðingi.

Verkefnið hjá Vigni í dag var hvítt gegn Teodoru Injac (2410) og fékk lítið úr byrjuninni. Raunar lenti Viggi í beyglu og var kominn í nauðvörn eftir fallegan leik þeirrar serbnesku

19…Rg4! og svartur er með svakalega sókn! Í kjölfarið lenti Vignir í algjörri nauðvörn, Injac stóð til vinnings en fann ekki bestu leikina og Viggi hélt sér á lífi. Injac storkaði örlögunum og hélt skákinni gangandi í stað þess að taka þráskák og endaði á að missa tökin og staða Vignis varð unnin. Vignir lét ekki bjóða sér það tvisvar og náði í gríðarlega mikilvægan vinning!

Mikilvægur sigur hjá Vigni sem hefur 6,5 vinning og er í færi á Heimsbikarmóts sæti með góðum lokaumferðum.

Útsending ECU frá 9. umferð:

Hannes hafði hvítt og mætti Bojan Maksimovic (2531) serbneskum stórmeistara. Upp kom Winawer-afbrigði í Frakkanum og var Hannes aldrei í vandræðum, var með smá pressu en aldrei nóg til að valda Maksimovic stórum vandræðum. Jafntefli niðurstaðan eftir þráleik í lokin.

 

Hilmir hafði svart á tyrneskan IM Huseyin Can Agdelen (2405). Upp kom Petroff og enginn vandræði á svart. Líklegast fór Hilmir að þenja sig full mikið í kringum 30. leik og bjó til veikleika í eigin stöðu og tapaði í kjölfarið peði sem Tyrkinn nýtti til fulls.

Josef við upphaf 6. umferð á EM einstaklinga í Katowice 2026.

Josef hafði hvítt gegn FM Bartosz Przybylski (2249) frá Póllandi. Pólverjinn fékk mun þægilegra miðtafl og hafði frumkvæðið en Josef náði að verjast vel og halda velli. Ef eitthvað var þá var Josef orðinn nærri því að vinna skiptamun yfir í endataflinu en svartur hafði nægjanlega mikið af peðum til að lenda ekki í taphættu.

Vignir hefur eftir umferðina 6,5 vinning af 9 mögulegum og Hannes hefur 5,5 vinninga. Á eftir þeim koma Hilmir með 4,5 vinning og Josef með 4 vinninga.

Í 10. umferð sem fram fer klukkan 13:00 á laugardaginn verða mikilvægar skákir en pörun liggur ekki fyrir að svo stöddu.

Á morgun er seinni frídagur mótsins og klárast svo EM um helgina.

Um mótið:

Evrópumót einstaklinga fer fram í Katowice í Póllandi 7-19. apríl en teflt er á hverjum degi en frídagar 11. og 17. apríl. Tefldar eru 11 umferðir um Evrópumeistaratitilinn og jafnframt sæti á Heimsbikarmótinu, mikið í húfi. Sætin eru eftirsótt þar sem Heimsbikarmótið er ávallt eitt vinsælasta mótið þegar það fer fram (annað hvert ár) og jafnframt getur það verið leið til að komast á Áskorendamótið (sem er nú í gangi).

Alls taka 501 skákmenn þátt á mótinu og eru íslensku keppendurnir fjórir. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2512) er númer 74 í stigaröðinni, GM Hannes Hlífar Stefánsson (2414) er númer 154 í stigaröðinni, IM Hilmir Freyr Heimisson (2297) er númer í 256 stigaröðinni og Josef Omarsson (2045) er númer 400 í stigaröðinni. Stigahæstur er Igor Kovalenko (2685) frá Úkraínu.

Íslensku keppendurnir eru (sjá myndband):

 

 

- Auglýsing -