Myndatakan af sigurvegurum gekk ekki alveg nógu vel í þetta skiptið!

Mót númer tvö sem VignirVatnar.is heldur á Nínu bar í samstarfi við EpicBet fór fram síðastliðið þriðjudagskvöld. Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson kom sá og sigraði að þessu sinni, var stigahæstur og sýndi mikla yfirburði!

Mótið var annað mótið sem haldið er á Nínu bar á Hverfisgötu í samstarfi við Epicbet. Fyrsta mótið var allt að því goðsagnakennt, mótið var haldið eftir lokahóf Reykjavíkurskákmótsins og fjöldi sterkra stórmeistara mættu til leiks. Amin Tabatabaei, sigurvegari Reykjavíkurskákmótsins vann sjö fyrstu skákir sínar, eins og á Reykjavíkurskákmótinu, og vann mótið á endanum.

Myndbrot frá síðasta móti:

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Vignir Vatnar (@vignirvatnar)

Úrslit úr fyrsta mótinu má nálgast á Chess-results

Eins og áður sagði var Björn Þorfinnsson sigurvegari á móti númer tvö og var eiginlega algjörlega í sérflokki. Eina spennan var í raun hvort að Björn næði að landa fullu húsi! Björn kom í mark með 8,5 vinning, leyfði aðeins jafntefli gegn Stephan Briem. Stephan landaði einmitt öðru sæti með 7 vinninga, eins og Björn Hólm Birkisson en betri oddastig, enda náði hann jafntefli gegn Þorfinnssyni!

  • U-2000 ELO verðlaun lentu hjá Halldóri Atla Kristjánssyni sem endaði með 6 vinninga en betri oddastig en Harald Björnsson.

  • U-1800 ELO verðlaunin lentu hjá Hilmari Ásu Hansson Jensen sem fékk 5 vinninga, góður árangur!

  • Efsti stigalausi keppandinn var Hjörleifur Rorbeck með 5 vinninga, magnaður árangur!

Úrslit/Staða á chess-results:

- Auglýsing -