Annar þáttastjórnenda Chess After Dark, Leifur Þorsteinsson og Andri Steinn Hilmarsson sjálfstæðismaður og bæjarfulltrúi í Kópavogi mættust í mögnuðu hraðskákeinvígi á Arena, Einvígi aldarinnar 2.0 eins og það var kallað.

Fyrsta einvígið í þessari seríu var viðureign Harðar Magnússonar og Heimis Guðjónssonar fyrir tveimur árum. Þá kláraði Hörður dæmið 5.5-2.5 í níu skákum. Einvígið núna var mun meira spennandi, vægast sagt!

Fyrirfram var einvígið talið algjört 50/50 – báðir keppendur álíka sterkir og lagði Lengjan upp með Leif sem líklegri í upphafi og stuðlar á hann 1.57 gegn 1.95 hjá Andra. Þegar leið á mótsdag hafði töluvert magn farið á Andra og línan því verið færð niður og þegar markaðurinn lokaði var Leifur á 1.78 og Andri orðinn favourite með 1.7!

Þetta 10 skáka einvígi hófst með því að Andri stýrði hvítu mönnunum. Greinilegt stress var hjá báðum keppendum sem sást best á því að Leifur afritaði meira og minna leikina sem Andri lék með hvítu mönnunum.

Stressið virtist meira hjá Andra í hrakinu, hann lék af sér manni..


38.Hd1?? og svartur tók á a5 og vann mann.

Stressið tók nú yfir hjá svörtum og 47…Ha1?? skilaði manninum til baka. Andri kláraði dæmið og komst í 1-0!

1-0 fyrir Andra en Leifur svaraði strax fyrir sig.


Snemma kom á daginn að Andri finnur sig best í sóknarstöðum en Leifur betri í rólegu stöðunum. Framan af einvígi skiptust keppendur á að vinna með hvítu.

Þriðja skákin:


2-1 fyrir Andra en Leifur jafnaði að bragði…

Leifur var svo með bringuna útreista í hálfleik, komst í 3-2 og var fyrstur til að vinna með svörtu. Hér kom í ljós að endatöflin voru ekki sterkasta hlið keppenda.

48.Hxg5?? var tapleikur í jafnteflisstöðu, hvítur heldur kóngnum á g2 og skákar svarta kónginn ef hann nálgast a-peðið! Áður var 40.Kf2?? tapleikur en Leifur nýtti sér það ekki.

3-2 í hálfleik, Leif í vil en þá tók Andri við sér! Andri jafnaði 3-3 eftir að Leifur lék sig í mát eftir eina af best tefldu skákum einvígisins.

Andri náði að hamra járnið og komast yfir 4-3. Leifur var með mjög vænlegt tafl með svörtu, De4 í stað Dg4 var t.a.m. nánast unnið tafl en Andri tók sína sénsa og komst yfir!

Flestir voru á því að Leifur myndi brotna hér en annað kom á daginn! Leifur byrjaði á að jafna metin með vel útfærðri skák. Fyrir utan augnablik þegar svartur gat tekið á c5 var hvítur með fulla stjórn á skákinni nánast allan tímann.

 

Staðan nú 4-4, ekki hægt að biðja um meiri spennu!!

Níunda skákin var dramatísk og eftirá að hyggja lykilskákin. Andri með hvítu var með mun betra tafl, eiginlega unnið +5 í tölvunum þegar best lét. Andri tapaði hinsvegar þræðinum, Leifur komst inn í skákina og náði að klára og komast í 5-4

Andri varð nú að vinna tíundu skákina til að jafna einvígið. Andri fékk fína sénsa með svörtu, betra tafl og tölvurnar sýndu næstu -2 á köflum. Leifur telfdi hinsvegar mjög leifinlega og náði að halda jafnvæginu og að lokum hafði hann sigur þegar Andri varð að teygja sig of langt!


Lokatölur því 6-4 og Leifur sigurvegari í þessu skemmtilega einvígi!

Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson og Fide meistarinn Ingvar Þór Jóhannesson sáu um lýsingar ásamt leynigestinum Hjörvari Steini Grétarssyni sem er stórmeistari. Útsendingin var beint á Vísi og á rásum CAD

(smellið á Twitch takkann ef afspilun virkar ekki hér!)

- Auglýsing -