Landsliðsmaðurinn og alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson gerði jafntefli við alþjóðlegan meistara í sjöundu umferð á opna Tælenska, alþjóðlegu móti í Bangkok. Dagur hefur fimm vinninga að loknum sjö umferðum og í grennd við efstu menn. Landsliðskonan og FIDE-meistari kvenna Hallgerður Þorsteinsdóttir tók hjásetu í umferð dagsins.

Dagur á Tæland Open 2026 (Mynd: Vigdís Kristín)

Dagur hafði svart gegn alþjóðlegum meistara frá Filipseyjum Paulo Bersamina (2434). Dagur tefldi Petroff og jafnaði taflið meira og minna eftir byrjunina. Hvítur fékk einn taktískan séns í miðtaflinu.

21.Bd7!? hefði verið mjög óþægilegur hér. Svartur virðist tapa liði t.d. 21…Hd8 22.e6 og biskupaskálínurnar og e-línan er vesen fyrir svartan! Í staðinn kom 21.f3 og ef eitthvað var þá var það Dagur sem pressaði örlítið í framhaldinu en taflið alltaf í jafnvægi.

Traust jafntefli og Dagur er vinningi á eftir efsta manni, hefur 5 vinninga eftir 7 umferði.

Í áttundu umferð á morgun hefur Dagur hvítt gegn úkraínska stórmeistaranum Vitaly Bernaditsky (2519). en hann er alþjóðlegur meistari. Hallgerður kemur aftur eftir hjásetu og hefur hvítt gegn James Rowan (1921) frá Kanada.

Um mótið:

241 skákmaður tekur þátt í A-flokki á Bangkok Open. Dagur er númer 45 í stigaröðinni en Hallgerður 127. Stigahæstur keppenda er „Lókurinn“ Loek van Wely en þekktastur keppenda og sá sem hefur oftast unnið mótið er önnur goðsögn, Nigel Short. Tefld er ein skák á dag, níu dagar.

- Auglýsing -