Tyrkneski undradrengurinn Yagiz Kaan Erdogmus eða „Músin“ eins og margir hafa byrjað að kalla hann hér á landi, heldur áfram að slá í gegn á alþjóðavettvangi. Í dag lauk einvígi við fyrrverandi heimsmeistarann Veselin Topalov og vann Músin með afgerandi hætti, 5–1, í sex skáka einvígi í Mónakó. Erdogmus er nú orðinn yngsti skákmaður sögunnar til að komast yfir 2700 elóstig!
Einvígið var hluti af Clash of Generations III, þar sem mættust tveir skákmenn af sitthvorri kynslóðinni. Topalov, sem er 51 árs gamall og heimsmeistari árin 2005–2006, mætti hinum 14 ára gamla Erdogmus, sem er þegar orðinn stigahæsti skákmaður heims undir 18 ára aldri og fremsti skákmaður Tyrklands.
Tefldar voru sex klassískar skákir dagana 12.–17. apríl með hefðbundnu tímamörkum (90 mínútur fyrir 40 leiki, síðan 30 mínútur auk 30 sekúndna viðbótar á leik). En þrátt fyrir reynslumuninn varð einvígið aldrei spennandi, Erdogmus réði lögum og lofum nánast frá upphafi og vann sannfærandi sigur.
Sigur af þessu tagi gegn jafn reyndum og sterkum skákmanni og Topalov undirstrikar hversu hröð framþróun Erdogmus hefur verið. Hann hefur á skömmum tíma fest sig í sessi meðal fremstu stórmeistara heims og virðist framtíðin björt, margir telja hann Heimsmeistaraefni.
Einvígið var skipulagt af Skáksambandi Mónakó með stuðningi frá Evren Ucok og er hluti af röð viðburða sem miða að því að stilla upp spennandi einvígjum milli kynslóða.
Spurningin er ekki lengur hvort Erdogmus verði einn af bestu skákmönnum heims – heldur hvenær…músin er að koma!
Skákirnar (smellið á punktana til að skipta um skák)
















