Þriðji keppnisdagur á Evrópumóti einstaklinga í Katowice í Póllandi fór fram í dag. Hilmir Freyr Heimisson var eini íslenski keppandinn sem náði í sigur þegar hann lagði  Josef Omarsson að velli í Íslendingaslag. Hannes Hlífar gerði jafntefli í sinni skák og líka Vignir Vatnar Stefánsson sem bjargaði gríðarlega erfiðu tafli, líklega töpuðu, og hélt þekktu hróksendatafli tveimur peðum undir. Vignir er enn efstur Íslendinga með 2,5 vinning eftir 3 skákir.

Vignir mætti ungum og efnilegum pólskum skákmann Piort Brzezina (2327) sem er FIDE-meistari. Vignir tefldi sikileyjarvörn, Grivas-afbrigðið og ætlaði greinilega að halda vinningsmöguleikum á lofti. Sá pólski tefldi af feiknakrafti þrátt fyrir að Vigni hafi greinilega komið honum á óvart í byrjuninni, Vignir missti aðeins þráðinn og hvítur fékk hörkusókn.

24.Ba6! var skemmtilegur og hvítur stendur nánast til vinnings. Eins og Vignir hefur bætt sig í gríðarlega undanfarin ár þá hét hann einfaldlega áfram að berjast „move-by-move“ eins og menn kalla það, leikja leikjum til að halda taflinu gangandi. Hvíta staðan hartnær unnin, á köflum yfir +5 í tölvumati en Vignir hélt velli. Loks náði Vignir að komast í hróksendatafl þar sem hvítur hefur h- og f-peð en Vignir hafði stúderað það vel á sínum tíma í góðum Chessable-kúrs frá Sam Shankland og mundi Vignir góðar þumalputtareglum og hélt endataflinu auðveldlega. Virkilega vel gert miðað við hversu erfið staðan var orðin!

Hannes Hlífar mætti grískum FIDE-meistara Kosmas-Lekkas (2195). Sá gríski tefldi vel, Hannesi varð lítið ágengt í miðtaflinu og ef eitthvað er stóð svartur aðeins betur. Grikkinn fékk einn séns í endataflinu.

Hér hefði verið erfitt að eiga við 34…Ra6! og hvítur tapar peði þar sem c2 og d5 eru óvölduð og c3 er svarað með Rc5 og peðin verða ekki völduð. Það er oft þannig að riddaraleikir afturábak geta verið erfiðir…sem betur fer voru þeir það í dag!

Hilmir mætti Josef og hafði sá síðarnefndi hvítt. Heimir virtist skilja stöðuna betur í miðtaflinu og hvíta staðan skildi eftir of mikið af veikleikum á kóngsvæng. Hilmir fór í sókn og endaði á að ná góðri mátsókn. Vonandi síðasti Íslendingaslagurinn á þessu móti, galin óheppni í raun að á 500 manna móti að Íslendingar skuli mætast með 4 keppendur!

Vignir hefur 2,5 vinning, Hilmir hefur 2 vinninga, Hannes 1,5 vinning og Josef 1 vinning.

Pörun 4. umferðar:

Vignir fær hvítt á enn einn Pólverjann, nú FM Piotr Kejna (2311), Hilmir hefur hvítt gegn Ísraelanum Benny Aizenberg (2451) en hann er alþjóðlegur meistari. Hann hefur svart gegn WIM Michalina Rudzinska (2204) og Josef hefur svart gegn Kósóvanum Korab Saraci (2251) sem er CM.

Um mótið:

Evrópumót einstaklinga fer fram í Katowice í Póllandi 7-19. apríl en teflt er á hverjum degi en frídagar 11. og 17. apríl. Tefldar eru 11 umferðir um Evrópumeistaratitilinn og jafnframt sæti á Heimsbikarmótinu, mikið í húfi. Sætin eru eftirsótt þar sem Heimsbikarmótið er ávallt eitt vinsælasta mótið þegar það fer fram (annað hvert ár) og jafnframt getur það verið leið til að komast á Áskorendamótið (sem er nú í gangi).

Alls taka 501 skákmenn þátt á mótinu og eru íslensku keppendurnir fjórir. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2512) er númer 74 í stigaröðinni, GM Hannes Hlífar Stefánsson (2414) er númer 154 í stigaröðinni, IM Hilmir Freyr Heimisson (2297) er númer í 256 stigaröðinni og Josef Omarsson (2045) er númer 400 í stigaröðinni. Stigahæstur er Igor Kovalenko (2685) frá Úkraínu.

Íslensku keppendurnir eru (sjá myndband):

 

- Auglýsing -