Sögulega framganga Úzbekans Javokhir Sindarov heldur áfram á Áskorendamótinu á Kýpur. Í dag lagði Sindarov indverska stórmeistarann Praggnanandhaa að velli og jók enn við forskot sitt, hefur tveggja vinninga forskot þegar fjórar skákir eru ótefldar. Sindarov er jafnframt búinn að setja met yfir flestar sigurskákir á fjórtán umferða áskorendamóti frá upphafi! Kvennaflokkurinn er áfram spennandi, Vaishali hefur nú hálfs vinnings forskot á Zhu Jiner og Muzychuk.
Kíkjum á áhugaverðar skákir dagsins í opna flokknum.
Sindarov – Praggnanandhaa
Enn og aftur var Sindarov með allt á hreinu í byrjanataflmennskunni. Hann fórnaði manni, hættuleg lína sem vissulega er 0.00 í tölvunum en staðan er mun meira krefjandi á svart og erfiðara að finna rétta leiki. Það reyndist vera niðurstaðan og Praggnanandhaa réði ekki við stöðuna. Enn einn sigurinn hjá Sindarov og eins og áður sagði er hann nú þegar búinn að setja metið yfir flestar sigurskákir á Áskorendamóti, magnað! Fyrir mót hefðu flestir ekki einu sinni sett hann sem besta skákmann Úzbekistan!
Giri – Nakamura
Anish Giri var eiginilega síðasta von þeirra sem halda ekki með Sindarov. Jafntefli í dag gegn Nakamura færir hann aftur 2 vinningum á eftir Sindarov og vonin orðin nokkuð veik eins og mótið hefur þróast og eins vel og Sindarov er að tefla.
Giri náði aldrei að ógna Nakamura að ráði og jafntefli niðurstaðan.
Jafntefli varð í hinum skákunum.
Sindarov hefur 8 vinninga af 9 sem er +6 skor en Giri hefur 6 vinninga, +2 með fjarandi möguleika, Caruana er enn í þriðja sætinu.
Kvennaflokkur:
Kvennaflokkurinn skiptir um oddafisk eins og nærbuxur og nú er það Vaishali sem er ein efst.
Vaishali gerði jafntefli við Muzychuk í toppbaráttuskákinni. Muzychuk hafði hvítt og hefði vafalítið viljað gera betur en jafnteflið virtist alltaf handan við hornið.
Zhu Jiner fékk fína stöðu úr byrjuinni með svörtu gegn Bibisara. Bibisara hinsvegar yfirspilaði þá kínversku í miðtaflinu og lyftir sér í fimmtíu prósentin sem er nú ekkert alltof langt frá toppnum, merkilegt nokk!
Goryachkina vann líka sína skák gegn Desmukh og kemst í 5 vinninga.
Eftir þessar umferð hefur Vaishali 6 vinninga en Muzychuk hefur 5,5 vinning ásamt Zhu Jiner og svo þrjár með 5 vinninga. Spennan heldur áfram!
Úrslit dagsins:
Round 10 | Results | FIDE Candidates & Women’s Candidates 2026
🇺🇿 Javokhir Sindarov, 🇰🇿 Bibisara Assaubayeva and Aleksandra Goryachkina score the only wins of the day! ♟️🔥
#FIDECandidates #FIDEWomensCandidates #FIDE #Chess pic.twitter.com/akq9Aj31ng
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 9, 2026
Staðan:
🇺🇿 Javokhir Sindarov and 🇮🇳 Vaishali Rameshbabu continue to hold their leads in the FIDE Candidates and Women’s Candidates, respectively! ♟️🔥#FIDECandidates #FIDEWomensCandidates #FIDE #Chess pic.twitter.com/jFRMkGtoMM
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 9, 2026
Frídagur er á morgun 10. apríl en 11. umferðin verður tefld 11. apríl á laugardag.
Tenglar:
Um mótið:
Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!
Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano Caruana, Hikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei Yi, Praggnanandhaa R, Javokhir Sindarov, Andrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.
Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu Jiner, Tan Zhongyi, Aleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju Wenjun. Anna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.













