Hollendingurinn Anish Giri lagði Fabiano Caruana að velli í níundu umferðinni  á Áskorendamótinu á Kýpur og vann þar með aðra skák sína í röð. Hann er nú sá eini sem getur ógnað Sindarov en möguleikar Caruana virðast vera algjörlega horfnir. Sindarov gerði jafntefli í sinni skák, hafði mjög vænlegt tafl gegn Bluebaum en náði ekki að klára dæmið. Aðrar skákir enduðu með jafntefli. Kvennaflokkurinn er áfram spennandi, Zhu Jiner og Vaishali unnu sínar skákir og eru efstar, hálfum vinningi á undan Muzychuk.

Kíkjum á áhugaverðar skákir dagsins í opna flokknum.

Caruana – Giri

Algjör úrslitaskák um hvor gæti veitt Sindarov keppni á þessu móti. Giri var ákveðnari í dag og aðgerðir hans á drottningarvæng alltaf hættulegri en pot hvíts á kóngsvæng. Rými og slæmur riddari á a1 urðu Caruana að falli og vonir hans um að komast aftur í heimsmeistaraeinvígið brostnar…allavega í þetta skiptið!

Bluebaum – Sindarov

Sindarov var í raun með unnið tafl gegn Bluebaum en aldrei þessu vant fann hann ekki réttu leiðina né leikina. Innrás hrók svarts á 2. reitaröð virkaði hættuleg en einhvern veginn varð ekkert úr því og Þjóðverjinn hélt jöfnu.

Jafntefli varð í hinum skákunum.

Sindarov hefur 7 vinninga af 9 sem er +5 skor en Giri hefur 5,5 vinning, +2 og sá eini sem á raunhæfa möguleika, Caruana er enn í þriðja sætinu en orðinn alltof langt á eftir Sindarov.

Kvennaflokkur:

Zhu Jiner er komin í uppáhald hjá öðrum af ritstjórum Skak.is, teflir skemmtilega og á að skilið að komast áfram á mótinu. Hún lagði Lagno að velli í dag, vann peð í miðtaflinu og þjarmaði að þeirri rússnesku jafnt og þétt og vann.

Vaishali náði að fylgja Zhu eftir á toppinn með því að leggja stallsystur sína frá Indlandi Desmukh að velli. Vonbrigði fyrir bjarndýr af ýmsu tagi sem halda upp á Desmukh á þessu móti.

Aðrar skákir enduðu með jafntefli .

Eftir þessar umferð hafa þærJiner og Vaishali 5,5 vinning en Muzychuk hefur 5 vinninga.

Úrslit dagsins:

Staðan:

10. umferð fer fram á morgun og svo tekur við frídagur 10. apríl.

Tenglar:

Um mótið:

Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!

Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano CaruanaHikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei YiPraggnanandhaa RJavokhir SindarovAndrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.

Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu JinerTan ZhongyiAleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju WenjunAnna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.

- Auglýsing -