Landsliðsflokkur Íslandsmótsins í skák hefst á föstudaginn kl. 15 í Miðgarði í Garðabæ við afar góðar aðstæður á annarri hæðinni. Alls taka tíu skákmenn þátt og þar af þrír stórmeistarar.
Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2512) verður að teljast langlíkastur en kollegar hans úr stórmeistarastétt Hannes Hlífar Stefánsson (2414) og Guðmundur Kjartansson (2407) eru báðir margfaldir Íslandsmeistarar og líklegir til að veita honum keppni.
Keppendalistinn er sem hér segir – athugið að stig verða uppfærð 1. maí.
- GM Vignir Vatnar Stefánsson (2512) – landsliðsflokkur 2025
- GM Hannes Hlífar Stefánsson (2414) – landsliðsflokkur 2025
- GM Guðmundur Kjartansson (2407) – Boðssæti
- IM Dagur Ragnarsson (2378) – Boðssæti
- IM Björn Þorfinnsson (2355) – Boðssæti
- FM Örn Leó Jóhannsson (2309) – Boðssæti
- IM Hilmir Freyr Heimisson (2297) – Boðssæti
- FM Bárður Örn Birkisson (2267) – Áskorendaflokkur 2025
- CM Björn Hólm Birkisson (2216) – Áskorendaflokkur 2025
- WGM Lenka Ptácníková (2122) – Íslandsmeistari kvenna
Umferðir hefjast daglega kl. 15 nema að lokaumferðin hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax lokaumferð lokinni.
Dregið var um töfluröð í gær. Í fyrstu umferð mætast:
- GM Vignir Vatnar (2512) – FM Örn Leó (2309)
- CM Björn Hólm (2216) – GM Hannes Hlífar (2414)
- IM Dagur Ragnarsson (2378) – Guðmundur Kjartansson (2407)
- FM Bárður Örn (2267) – IM Björn Þorfinnsson (2355)
- WGM Lenka Ptácníková (2122) – IM Hilmir Freyr (2297)
Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar mun setja mótið og leika fyrsta leikinn.
Fleiri tenglar til að fylgjast með væntanlegir.
















