Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson og alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson unnu báðir skák sína í dag í fjórðu umferð á alþjóðlegu móti á Korsíku, Porticcio Open. Þeir halda áfram að tefla hlið við hlið enn um sinn!

Guðmundur vann fínan tæknisigur í fjórðu umferðinni. Gummi hafði hvítt og hélt góðri stjórn á stöðunni, vann peð í miðtaflinu og svo annað og vann í innan við 40 leikjum eins og í hinum sigurskákunum til þessa. Aftur, gaman að sjá þennan kraft í taflmennsku Guðmundar!

Björn hafði hvítt og fékk betra tafl en fann netta fléttu sem vann peð til að einfalda úrvinnsluna.
19.Rxe5! vinnur mikilvægt peð þar sem borð svarts er svo veikt. 19…Hxe5 20.Hxa7! er hugmyndin!
Á morgun er tvöföld umferð og línur ættu að skýrast nokkuð vel. Guðmundur hefur svart gegn SUMETS Andrey stórmeistara en Björn svart gegn KOELLE Tobias sem er þýskur IM.
Alls taka rúmlega 50 skákmenn þátt í efsta flokknum sem Guðmundur og Björn eru skráðir til leiks í. Guðmundur er númer 9 í stigaröðinni en Björn númer 11.
















