Baráttan um forsetastól FIDE harðnar. Í gær tilkynnti núverandi forseti Arkady Dvorkovich formlega framboð sitt til þriðja kjörtímabils. Var reyndar nokkuð fyrirséð.
Arkady Dvorkovich tilkynnti á samfélagsmiðlum og kynnti framboð sitt með áherslu á vöxt og þróun skákarinnar undir hans stjórn. Hann nefndi meðal annars aukinn fjölda móta, stærri viðburði og fleiri tækifæri fyrir skáksambönd um heim allan.
Sem varaforsetaefni býður hann fram, Timur Turlov, auðmann, forseta Skáksambands Kasakstan og forstjóra Freedom Holding Corp. Turlov er þekktur fyrir umfangsmikla fjárfestingu í skák, bæði á efsta stigi og í skólaskák. Hann hefur meðal annars verið lykilmaður í HM fyrirtækja, HM skólasveita og stofnun International School Chess Federation (ISCF) sem starfar í tengslum við FIDE.
♟ Eight years ago, I committed to building a stronger, fairer, global FIDE.
Serving as the president of FIDE for the past eight years has been an exceptional honour.
Together, we have strengthened FIDE, significantly expanded and improved global events and invested more in… pic.twitter.com/vFXkYLnB1f
— Arkady Dvorkovich (@advorkovich) June 29, 2026
Í fyrri frétt okkar á Skak.is var fjallað um framboð þýsku auðmannanna Jan Henric Buettner og Wadim Rosenstein sem báðir hafa lýst yfir vilja sínum til að taka við stjórn FIDE. Framboð Dvorkovich kemur alls ekki á óvart. Kosningarnar fara fram 26. september í Samarkand í Úsbekistan samhliða Ólympíuskákmótinu.
Viðbrögð og bakgrunnur
Viðbrögðin við framboði Dvorkovich hafa verið blendin. Stuðningsmenn benda á góða þróun FIDE undir hans stjórn, meðal annars aukna þátttöku kvenna, menntaverkefni og fjölgun stórviðburða. Turlov er talinn sterkur liðsmaður vegna fjárhagslegs styrks og reynslu í alþjóðlegum skákverkefnum.
Gagnrýnendur, ekki síst, evrópskir fulltrúar, hafa hins vegar bent á pólitíska bakgrunn Dvorkovich og mögulegar refsiaðgerðir ESB sem geta skapað alls konar vandamál fyrir hann og FIDE. Framboð Buettner og Rosenstein hafa þegar sett tóninn fyrir harða baráttu þar sem mál eins og fjármálastjórn, sjálfstæði og nýstárlegri nálgun verða í brennidepli. Og að sjálfögðu tengsl við Rússland. Rosenstein hefur reyndar einnig verið bendlaður við tengsl við Rússland og hafa þar menn flaggað skák hans gegn Karjakin. Hann neitar öllum slíkum tengslum.
Athygli vekur að Dvorkovich lagði sjálfur til átta ára hámark (tvö kjörtímabil) þegar hann var fyrst kjörinn forseti árið 2018. Síðar var þessu hámarki breytt á FIDE-þingi þannig að hann getur nú leitað endurkjörs í þriðja sinn.
Dvorkovich hefur áður sýnt að hann getur sigrað í kosningum þrátt fyrir pólitískar deilur, en þetta verður hans þriðja kosningabarátta. Spurningin sem margir spyrja sig nú er hvort nýju framboðin geti sameinað andstæðinga hans eða hvort Rússar og bandamenn þeirra haldi völdum í FIDE – eins og vanalega! Svo er alls ekki útilokað að fram komi fleiri frambjóðendur.
Kosningar til Skáksambands Evrópu (ECU) í Búkarest þann 18. júlí gætu gefið ýmsar vísbendingar um stöðuna.
















