Þrettánfaldi Íslandsmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson hóf í dag taflmennsku á opnu móti á Spáni: VII Open Internacional València Cuna del Ajedrez. Hann hóf mótið með sigri gegn stigalægri andstæðingi. Alls taka 141 skákmaður þátt á mótinu og þar af fjöldi stórmeistara. Hannes er númer 13 í stigaröð keppenda.
Hannes hafði svart og mætti FIDE-meistaranum David Madularea (2259) frá Hollandi. Upp kom advance-variation í franskri vörn en skákin byrjaði þó sem sikileyarvörn en „transpósaði“ yfir í franska.
Hannes fékk snemma þægilegt tafl og var með einhverja pressu. Sá hollenski slapp í endatafl sem ætti líklega að vera jafntefli með bestu taflmennsku en lék af sér mikilvægu peði á vitlausu augnabliki og Hannes náði að landa sigrinum.
Tefld er ein umferð á daga, níu daga mót! Hannes mun hafa hvítt gegn Andrei Negrean (2366) FIDE-meistara frá Rúmeníu.















