Hið árlega sumarskákmót Vinaskákfélagsins var haldið mánudaginn 6 júlí 2025 í Vin að Hverfisgötu 47. Í þetta sinn voru keppendur 18 og veðurguðirnir voru okkur hliðhollir, að vísu skýjað, þannig að hægt var að tefla bæði inni og úti.
Undir titill mótsins var „Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák 2025“.
Tefldar voru 6 umferðir með 4 mín. + 2 sek., á skák.
Sjálfboðaliðar frá Frakklandi léku fyrsta leikinn fyrir Róbert Lagerman á móti Jón Gauta Ingibjargarson

Sigurvegari mótsins var Róbert Lagerman með 5,5 vinninga.
2 sæti: Harald Björnsson með 4,5 vinninga.
3ja sæti: Anh Hai Tran með 4 vinninga.

Einnig var keppt um það hver ynni “Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák“ og varð Róbert Lagerman Hraðskákmeistari Vinaskákfélagsins 2026.
Í örðu sæti var svo Tómas Ponzi og þriðji Hilmar Hansson.

Skákdómari var Róbert Lagerman og mótstjóri var Hörður Jónasson.
Í hléi var boðið upp á kaffi og wöfflur sem sjálfboðaliðarnir frá Frakklandi sáu um ásamt Sabrínu starfsmanni Vinjar.

Hægt er að sjá öll úrslit mótsins hér: Sumarskákmót Vinaskákfélagsins 2026
Kveðja, Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins.
Ps. Ég þakka öllum í Vin sem hjálpuðu okkur með mótið.



















