Vinaskákfélagið hélt sitt fjórða Minningarskákmót um Hrafn Jökulsson laugardaginn 31 október 2026.
6 skákmenn mættu og var tefld 2 föld umferð með 3 mín + 2 sek., á klukkunni.
Skákmótið var haldið á Aflagranda 40, en þar hafði Hrafn heitinn verið með bókaupplestur síðustu árin sem hann lifði.
Húsið opnaði klukkan 13:00, en mótið sjálft hófst klukkan 14:00.
Glæsilegar veitingar voru á boðstólum sem skákmenn og gestir gæddu sér á.

Settur var upp minningarveggur með ýmsum myndum af Hrafni Jökulssyni.
Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins bauð síðan gesti velkomna á skákmótið og lék Ragna Briem fyrsta leikinn fyrir Tómas Ponzi gegn Róberti Lagerman.

Skákdómari var Róbert Lagerman og mótstjóri Hörður Jónasson.
Verðlaunin voru hin glæsilegustu, en sá sem sigraði var Róbert Lagerman með fullu húsi eða 10 vinninga.

Róbert Lagerman fær síðan nafn sitt áritað á glæsilega Bronsstyttu sem Grænlendingar gáfu Vinaskákfélaginu.
- sæti. Thorsteinn G, Sigurdsson með 6 vinninga.
- sæti. Sveinbjorn Jonsson með 5,5 vinninga.
50 ára og eldri: Tómas Ponzi með 4,5 vinninga.
Vinaskákfélagið vill þakka Bakarameistaranum fyrir frábærar veitingar og ÍsSpor fyrir alla verðlaunagripina.
Hægt er að sjá úrslit skákmótsins hér: Minningarskákmót um Hrafn Jökulsson 2026
Vinaskákfélagið vill síðan þakka öllum fyrir komuna á þetta glæsilega minningarskákmót og ætlunin er að halda þessi skákmót árlega.
Kveðja, Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins.



















