Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2540) gerði jafntefli við armenska stórmeistarann Levon Babujian (2337) í fimmtu umferð alþjóðlega mótsins í Kavala í Grikklandi í gær. Þriðja jafnteflið í röð. Óskar Víkingur Davíðsson (2035) tapaði í gær.

Vignir hefur 3½ vinning og er í skiptu 16. sæti.
Sjötta umferð fer fram í dag og hefst kl. 14. Vignir verður í beinni útsendingu.
Alls taka 148 keppendur frá 32 löndum í a-flokki þar sem þeir tefla. Vignir er nr. 3 í stigaröð keppenda en Óskar er nr. 128.
Lifandi streymi verður frá umferð dagsins semhefst kl. 14.
Guðmundur Peng Sveinsson (1700) teflir í b-flokki (u2100). Hann gerði jafntefli í gær og hefur 2½ vinning 5 umferðir.
- Auglýsing -















