Átta íslenskir skákmenn sitja að tafli á Czech Open í Pardubice.
Mæðginin Jósef Omarsson (2064), Lenka Ptácníková (2063) og Adam Omarsson (2006) eru meðal 221 keppenda í a-flokki. Þau eru á milli 186-217 í stigaröð keppenda.
Áttunda og næstsíðasta umferð fór fram í gær. Jósef Omarsson gerði jafntefli við Þjóðverjann Viktor Pererva (2152) en Lenka og Adam töpuðu bæði. Fyrsta tap Lenku síðan í þriðju umferð þrátt fyrir að teflt upp fyrir sig allt mótið.
Lenka hefur 4 vinninga, Jósef 3 vinninga og Adam hefur 2 vinninga.Í b-flokki (1500-2200) tefla Jón Úlfur Hafþórsson (1935) og Theodór Eiríksson (1845).
Theodór gerði jatntefli en Jón Úlfur tapaði. Theodór hefur 4½ vinning en Jón hefur 3 vinninga
Í c-flokki (u1800) teflir Eríkur Orri Guðmundsson (1539).
Eiríkur tapaði í gær og hefur 3½ vinning.
Í flokki 30+ tefla Sigurður Ingason (1783) og Óskar Haraldsson (1757).
Sigurður gerði jafntefli en Óskar tapaði. Sigurður hefur 4½ vinning en Óskar hefur 3 vinninga.


A-flokkur á Chess-Results














